Tvær konur unnu í Lottó – önnur grét, hin bókaði Tenerife
lotto
Mynd/samsett

Kona um fimmtugt hlaut fyrsta vinning í Lottó síðastliðinn laugardag og vann rúmar 9,3 milljónir króna í einföldum potti. Miðann keypti hún í Lottóappinu, líkt og hún er vön, og kom vinningurinn henni skemmtilega á óvart, að því er segir í tilkynningu frá Íslenskri getspá.

„Ég sá að fyrsti vinningur hefði farið á miða keyptan í appinu, en þar sem ég fékk enga tilkynningu um vinning eftir útdráttinn spáði ég ekkert frekar í því. Þess vegna kom símtalið frá starfsmanni Íslenskrar getspár á mánudagsmorgni mér algjörlega í opna skjöldu,“ segir vinningshafinn.

Vinningurinn kemur á afar hentugum tíma, þar sem hún er nýlega farin út í sjálfstæðan rekstur og hefur tekjustreymið því tekið breytingum. Hún segir að vinningurinn veiti henni aukið öryggi og svigrúm á þessum nýja kafla í lífinu.

Aðspurð um tölurnar segir hún að hún velji alltaf fyrstu röðina sjálf, en leyfi svo appinu að velja restina. „Það var einmitt ein af sjálfvalsröðunum sem skilaði vinningnum,“ segir hún og brosir.

Það eina sem er þegar ákveðið er að maðurinn hennar á ferð til Tenerife inni: „Við gerðum samkomulag á laugardeginum – ef hann myndi vinna myndi hann bjóða mér, og ef ég myndi vinna myndi ég bjóða honum. Það eina sem er 100% ákveðið núna er að hann á ferð til Tenerife inni!“

Þetta er í annað sinn á tveimur vikum sem fyrsti vinningur gengur út, því fyrir síðustu helgi kom annar vinningshafi í heimsókn til Íslenskrar getspár – kona um sextugt sem hafði unnið rúmar 9,2 milljónir króna í Lottó vikuna á undan. Hún hafði keypt miðann sinn á N1, Vesturbraut á Höfn í Hornafirði. Hún var ólýsanlega glöð og mátti sjá nokkur gleðitár falla um leið og hún afhenti vinningsmiðann.

Í tilkynningunni er vinningshöfunum báðum óskað innilega til hamingju og um leið þakkað fyrir veittan stuðning – sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu, þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

Nýjustu fréttir

Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Landsréttur hafnaði kröfu um gæsluvarðhald
Framkvæmdir í febrúar-blíðunni
„Þær halda utan um hjartað í Hljómey“ 
Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu
Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.