Tvær líkamsárásir kærðar til lögreglu
Nokkur erill var hjá lögreglu í liðinni viku vegna hinna ýmsu mála sem komu upp. Nokkuð var um að lögreglan þurfti að aðstoða borgarana vega ölvunarástands fólks. �?á fékk lögreglan nokkrar kvartanir vegna hávaða bæði frá heimahúsum sem og frá flugeldum sem enn virðist vera eitthvað af. Rétt er að það komi fram að óheimilit er að skjóta upp flugeldum nema í kringum áramót og með sérstöku leyfi lögreglustjóra.
Tvær líkamsárásir voru kærðar til lögreglu í liðinni viku og átti önnur sér stað á Heiðarvegi fyrir utan Leikhúsið þar sem fullorðinn maður réðst að unglingspilti með þeim afleiðingum að pilturinn fékk áverka. Hin árásin átti sér stað á Skólavegi en þarna hafði einhver leiðindi orðið á milli tveggja manna eftir eftir að annar mannanna braut rúðu. Enduðu þessi samskipti með því að annar mannanna sló hinn þannig að hann nefbrotnaði. Bæði málin eru í rannsókn.
Fimm kærur liggja fyrir vegna brota á umferðarlögum en um er að ræða vanrækslu á notkun öryggisbelta í akstri, ólöglega lagningu ökutækja og ökuljós ekki tendruð.
Eitt umferðaróhapp var tilkynnt lögreglu í vikunni en þarna hafði bifreið verið ekið afturábak á kyrrstæða bifreið. Tjón varð á báðum bifreiðunum en engin slys á fólki.

Nýjustu fréttir

Árni Sigfússon – Um Eyjagöng
Bjartsýni á framtíð Eyjanna á erfiðum tímum
Marsralli um það bil að ljúka
Gul viðvörun fyrir allt landið
Ljósmyndakeppni fyrir börn og ungmenni
Íþróttamaður mánaðarins – Birna María
Þurfa Eyjamenn að taka málin í sínar hendur?
Framtíðarsýn – tökum samtalið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.