Tvö kynferðisbrot komu til rannsóknar �?? Fimm fíkniefnasalar
4. ágúst, 2015
Lögregla telur 15.000 manns hafa sótt þjóðhátíð Vestmannaeyja að þessu sinni. 26 lögreglumenn sinntu löggæslu og 100 gæslumenn. Auk þeirra var starfandi læknir í dalnum og annað heilbrigðisstarfsfólk, áfallateymi og sjúkraflutningamenn. Áfallateymi aðstoðaði fólk við ýmis mál svo sem sjálfsvígshugsanir, kvíða og fleira. Barnaverndarstarfsmenn sinntu auk þess málum barna undir 18 ára aldri sem komu upp á hátíðinni.
Umferð gekk vel þessa helgi og akstur farþegaflutningabifreiða einnig. Hringtorg í dalnum kom vel út og nokkuð vel gekk að aðgreina gangandi vegfarendur frá akandi.
Fíkniefnamál voru mörg þessa hátíðina og hafa aldrei verið fleiri en 72 mál komu upp enda var þessum málaflokki vel sinnt. Mest var haldlagt af hvítum efnum og í að minnsta kosti 5 þeirra var um sölu og dreifingu að ræða. Að mati lögreglu þykir þessi árangur í fíkniefnamálum hafa komið í veg fyrir alvarleg ofbeldisbrot þar sem þekkt er að af neyslu hvítra efna verða menn árásargjarnari en ella.
Engar alvarlegar líkamsárásir voru kærðar til lögreglu en sex mál vegna minniháttar líkamsárása eru til rannsóknar án þess þó að hafa verið kærðar. Eitt mál kom upp er varðar nytjastuld og eignaspjöll og hefur það verið upplýst.
Tvö kynferðisbrot komu til rannsóknar hjá lögreglu. Fyrra málið kom inn á borð lögreglu aðfaranótt sunnudags en meint brot á að hafa átt sér stað í kringum miðnætti kvöldið áður. �?olandinn, ung stúlka, fékk viðeigandi aðstoð og var flutt á neyðarmóttöku á Landspítalann í Reykjavík og var tilnefndur réttargæslumaður. Rannsókn er að mestu lokið en óljóst um málsatvik.
Seinna málið var tilkynnt lögreglu að kvöldi sunnudags en á að hafa átt sér stað eftir miðnætti aðfaranótt sunnudags. Um tengda aðila er að ræða og fékk konan viðeigandi aðstoð og var flutt á neyðarmóttöku á Landspítalann í Reykjavík og var tilnefndur réttargæslumaður. Vettvangur var rannsakaður og sakborningur handtekinn af lögreglu skömmu eftir tilkynningu þar sem skipulögð leit fór fram af honum í Herjólfsdal. Málið telst upplýst og rannsókn vel á veg komin.
Miðað við fyrri hátíðir fór þjóðhátíðin vel fram og er það mat lögreglu að löggæsla hafi gengið vel á hátíðinni og gæsla hafi verið öflug. Viðbragð í sjúkraskýli, hjá áfallateymi og barnavernd var gott og fjölmörgum sem var sinnt vegna mismunandi erfiðleika. �?að er miður að upp hafi komið kynferðisbrot en áhersla var á vönduð og fagleg vinnubrögð við þeim þar sem rannsóknarhagsmunir og hagsmunir brotaþola voru settir í forgang. �?að er mat lögreglu og áfallateymis að vel hafi tekist til með að senda ekki tafarlausar upplýsingar um alvarlegustu brotin til fjölmiðla heldur að veita slíkar upplýsingar á réttum tímapunkti eins og alltaf hafi staðið til.
Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
6. tbl. 2025
6. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.