Þekkingarsetur Vestmannaeyja hefur gert samning við Vestmannaeyjabæ um rekstur á
Fiska- og Náttúrugripasafni Vestmannaeyja í eitt ár. Samningurinn tók gildi 1. janúar en þá lét Kristján Egilsson forstöðumaður safnsins af störfum vegna aldurs. Páll Marvin Jónson, forstöðumaður Þekkingarsetursins, verður yfirmaður safnsins en Margrét Lilja Magnúsdóttir, líffræðingur, annast daglegan rekstur og Georg Skæringsson kemur að viðhaldi og umönnun.