Það er óhætt að segja að viðtökur leiksýningar Leikfélags Vestmannaeyja hafi farið fram úr björtustu vonum en uppselt er á fyrstu átta sýningar Mamma Mia. Söngleikurinn hefur fengið frábærar viðtökur í Eyjum en nú er búið að sýna verkið fimm sinnum og þrjár sýningar eru næstu þrjá daga. Uppselt er á allar sýningarnar en forráðamenn Leikfélagsins hafa gripið til þess ráðs að taka niður nöfn á biðlista ef eitthvað skildi losna, slík er ásóknin í miða.