�?rslit í myndakeppninni Vilborg og Hrafninn
Á safnahelginni í nóvember var boðið upp á dagskrá um Herjólfsdal fyrir börnin í Sagnheimum, byggðasafni. Fríða Sigurðardóttir sagði þá sögu Vilborgar Herjólfsdóttur og hvernig hrafn einn, sem hún hafði oft gefið að éta, bjargaði lífi hennar þegar skriða féll yfir bæinn hennar. Boðskapur sögunnar er því gamli málshátturinn Guð launar fyrir hrafninn. Helga safnstjóri var síðan búin að taka saman ratleik sem byggðist á sögunni.
Mátti sjá bæði krakka og foreldra þeirra hlaupa fram og til baka um byggðasafnið í leit að svörum við missnúnum spurningum. Að lokum voru allir þáttakendur beðnir um að teikna mynd af Vilborgu og hrafninum og senda Sagnheimum. Nú er komið að því að veita verðlaun fyrir bestu myndirnar. Til að tryggja fagleg vinnubrögð voru þær stöllur Steinunn Einarsdóttir og Kristín Garðarsdóttir frá Listvinum fengnar til að velja.
�?á mun bryddað upp á því nýmæli að fá ekta víking til að koma í heimsókn, Georg Rúnar �?gmundsson. Georg mun afhenda verðlaunin og segja í leiðinni frá lífi víkinganna. Einnig fá áhugasamir að þreyta aflraunir við hann. Blaðamaður getur vel séð fyrir sér að Georg passi í hlutverkið enda ekki ólíkur landnámsmönnum að útliti. Að sögn Helgu er ástæða til að hvetja sem flesta til að koma því uppistand Georgs sé skemmtileg tilraun til að færa söguna á lifandi hátt nær nútímanum.

Nýjustu fréttir

Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu
Bæjarráð samþykkir að selja hlut í Landsbankanum
Lokaumferðin: ÍBV fær topplið Vals í heimsókn
„Meira af loðnu en maður hefur séð í langan tíma“
Eyjalistinn boðar til félagsfundar
Góð aðsókn á fundi Eyþórs
Karla- og kvennalið ÍBV töpuðu í Lengjubikarnum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.