�?tboð Vestmannaeyjaferju
Ríkiskaup, fyrir hönd Vegagerðarinnar óskar eftir tilboðum í smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju eða smíði og rekstur nýrrar ferju til 12 ára. �?essi tveir kostir verða síðan bornir saman og út frá þeim samanburði valinn einn samningsaðili. �?ar af leiðandi er útboðinu skipt í tvo hluta. Annars vegar er óskað eftir tilboðum í smíði á nýrri ferju til fólks-, bíla- og vöruflutninga milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar. Ferjan á að vera um 70 metra löng, 14 metra breið, geta flutt allt að 73 fólksbíla og allt að 540 farþega og vera með djúpristu um 2,8m. Til samanburðar þá getur Herjólfur flutt innan við 56 bifreiða, allt að 525 farþega og er með djúpristu 4,2m. Nýja ferjan skal vera með tveimur Azipull skrúfum sem gefur henni mikla stjórnhæfni við erfiðar aðstæður. Hinsvegar er óskað eftir tilboðum í einkaframkvæmd, þ.e. að þjónustuaðili eigi, og byggi ferju í samræmi við lýsingu á ferjunni hér að ofan og annist rekstur ferjunnar milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja
Vegagerðin býður því út tvo kosti við lausn á þessu verkefni og mun að loknu útboði velja þann kost sem reynist hagkvæmari.
�?tboðsgögn verða til afhendingar hjá Ríkiskaupum frá og með miðvikudeginum 15. júní og er stefnt að opna tilboðin fimmtudaginn 25. ágúst nk. Gert er ráð fyrir að nýja ferjan hefji siglingar milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyjar síðla sumars 2018.
Meðfylgjandi er frekar kynningarefni og myndir.

Nýjustu fréttir

Eló heldur tónleika í Eyjum
Þórunn Sveinsdóttir VE kveður Eyjar
Rauði krossinn í Eyjum fagnaði 85 árum með opnu húsi
Sveiflur í veðri og ógnar brim
Gul viðvörun – Austanhríð
Kristín Klara lék í sigri Íslands á Serbíu
Þar sem andinn er góður og stemningin í klefanum frábær
Bílaumboðið Una selur XPENG bíla á Íslandi 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.