Jóhanna Ýr Jónsdóttir og Sighvatur Jónsson frumsýndu í gær, miðvikdag heimildarmynd sína Útlendingur heima- uppgjör við eldgos. Myndin var sýnd í bæjarleikhúsinu og voru áhorfendabekkirnir þéttskipaðir. Sýningargestir voru sammála um það, að þeim Jóhönnu og Sighvati hafi tekist með eindæmum vel að festa þessar ósögðu sögur á filmu.