Væri til í að spila sem lítill og feitur dvergur
�??�?að væri nú gaman að taka einn leik svoleiðis, sjá hvernig það kæmi út,�?? sagði varnartröllið Sindri Haraldsson, leikmaður Íslandsmeistara ÍBV og gjarnan kallaður Heimakletturinn. Eins og áður kom fram hér á Eyjafréttum var Sindri sagður 112 cm á hæð og 193 kg í leikmannakynningu á vef Evrópska handknattleikssambandið og hafði Sindri gaman að því.
Blaðamaður Eyjafrétta hitti á hann á æfingu í gær en liðið undirbýr sig nú fyrir tvo leiki gegn ísraelska liðinu Maccabi Rashon Lezion um helgina, á laugardaginn klukkan 16:00 og sunnudaginn klukkan 14:00. �??Mér líst bara vel á þetta. Við höfum undirbúið okkur vel og skoðað þetta lið,�?? sagði Sindri m.a. í viðtalinu sem fylgir fréttinni.
Sindri tók ekki mikinn þátt í æfingunni en hann á við meiðsli að stríða. �??�?g er pínu tæpur. En ég spila. �?að þarf að vera eitthvað mikið að til að maður sleppir þessu,�?? sagði Sindri og bætti því við að hann vildi fá fullt hús á leikina tvo og góðan stuðning.
Sjáðu viðtalið í heild sinni hér að ofan. Hér að neðan eru svo hressir Eyjapeyjar sem voru á æfingunni. �?eir eru klárir í slaginn eins og sjá má.

Nýjustu fréttir

Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.