Karlalið ÍBV tekur á móti Val í Olísdeildinni í kvöld klukkan 19:30. Eyjamenn hafa þegar tryggt sér annað sætið í Olísdeildinni og eiga reyndar enn möguleika á Deildarmeistaratitlinum en þá verða þeir að vinna síðustu tvo leikina og Haukar að tapa síðustu tveimur. Valsmenn þurfa líka á stigunum að halda því þótt þeir hafi tryggt sér sæti í úrslitakeppninni, þá geta Framarar stolið þriðja sætinu af þeim enda er Fram aðeins tveimur stigum á eftir Val. Eyjamaðurinn Vignir Stefánsson verður vitaskuld á sínum stað í Valsliðinu í kvöld.
Ef ÍBV vinnur í kvöld og Haukar tapa, þá verður hreinn úrslitaleikur um Deildarmeistaratitilinn í Hafnarfirði á mánudaginn þegar Haukar taka á móti ÍBV. Haukar taka á móti Akureyri í kvöld á heimavelli sínum í Hafnarfirði.
Upphitunarþáttur Hvítu Riddaranna
Stuðningsmannasveintin Hvítu Riddararnir ætla að bjóða upp á upphitunarþátt fyrir leikinn í beinni útsendingu á vefnum. �?tsendingin fer fram í gegnum snjallsímaforritið Yevvo en með þeim verður Stefán Árnason, þjálfari hjá ÍBV. �?tsendingin hefst klukkutíma fyrir leik eða 18:30 og hægt er að fylgjast með útsendingunni með því að smella
hér.