Vegna samnings Vegagerðarinnar við Björgun

Eftir opnun tilboða í viðhaldsdýpkun Landeyjahafnar fyrir árin 2019 til 2021 hafa Vegagerðinni borist athugasemdir og fyrirspurnir þar sem lýst er áhyggjum yfir því að samið verði við lægstbjóðanda Björgun ehf. segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Gerðar hafa verið athugasemdir við það að í útboðinu gildi verð 65% og hæfi verktaka 35%. Að mati Vegagerðarinnar er ekkert óeðlilegt við þessar prósentuskiptingar, það að hæfi verktaka gildi 35% er nokkuð hátt, yfirleitt í útboðum vegur verðhlutinn enn þyngra. Afkastageta verktaka er metin í 35% hlutanum t.d. með rúmmáli lestar, tíma sem tekur að fylla skipið, sigla á losunarstað og tæma skipið. Auðvitað má koma með stífari kröfur um afkastagetu en gert er í útboðsgögnum. En ef slíkt hefði verið gert þá hefðu verktakar verið útilokaðir og útboðið jafnvel verið kæranlegt á grundvelli þess. Það er líka spurning hvers konar kröfur hefðu verið settar fram. Reynslan af dýpkun í Landeyjahöfn sýnir að dýpkunarskip þess sem sér um dýpkunina í dag er tvöfalt eða þrefalt afkastameira en dýpkunarskip þess sem fékk verkið í þessu útboði. Það gildir hins vegar aðeins þegar alda er lág og vindur lítill. Afkastageta lægstbjóðanda er hins vegar margfalt meiri í hárri öldu og vindi en þess sem nú dýpkar, því hann getur ekki dýpkað í þeim veðrum sem farið er fram á í útboðsgögnum.

Spurt hefur verið hvers vegna dýpkunartímabil í útboðinu séu óbreytt frá fyrri árum. Útboðið nær einungis til dýpkunar með skipum og vegna veðurs eins og reynslan sýnir þá er nær ógerlegt að dýpka með þeim í desember, janúar og febrúar. Varðandi lengingu á þeim tíma sem dýpi er nægjanlegt í höfninni er vonast til þess að það náist vegna grunnristu nýs Herjólfs og með dælingu frá landi/garðsendum sem verður mögulegt þegar endurbótum á höfninni lýkur.

Ef veðurskilyrði eru góð utan skilgreindra dýpkunartímabila mun Vegagerðin óska eftir því að Björgun eða annar aðili vinni við dýpkun, slík tilfelli verða þó háð samþykki þess sem dýpkar.

Í tilboði Björgunar eru dýpkunarskipin Dísa og Sóley boðin til verksins. Auk þess er gröfupramminn Reynir og efnisflutningaskipið Pétur Mikli boðnir, en þessi tæki hafa ekki dýpkað í Landeyjahöfn. Með þessum tækjabúnaði verður afkastgeta Björgunar a.m.k. sambærileg og hins belgíska Jan De Nul. Að mati Vegagerðarinnar er verktakinn með nauðsynlegan tækjabúnað til að vinna verkið með viðunandi hætti og getu til að dýpka höfnina nægjanlega m.t.t. siglinga innan hæfilegs tímaramma.

Vegagerðin vill líka benda á að Landeyjahöfn hefur yfirleitt verið opin frá febrúar/apríl til nóvember/desember frá árinu 2011. Munurinn á milli þeirra sem hafa dýpkað höfnina er ekki mikill en veðráttan ræður öllu.

Verktakinn mun verða beittur dagsektum ef hann er ekki við vinnu þegar dýpi er ekki nægjanlegt í höfninni og veðurskilyrði eru til dýpkunar. Þetta á líka við ef verktaki getur ekki dýpkað vegna bilana, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Nýjustu fréttir

Alexandra Ósk framlengir við ÍBV
Bifreið hafnaði á járngirðingu við Kirkjuveg
Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug
Gugusar fimmti tónlistamaðurinn á Hljómey
Tónlistarsköpun fyrir ungmenni í Féló
Dramatískur sigur ÍBV á Haukum
Stórsigur ÍBV á Akureyri
Lengjubikarinn hófst í dag hjá ÍBV

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.