Víti í Vestmannaeyjum var frumsýnd á föstudaginn og hefur heldur betur slegið í gegn. En rúmlega 10.000 gestir fjölmenntu í bíó landsins. �?etta er mjög góð aðsókn á frumsýningarhelgi og gefur góð fyrirheit um framhaldið. Víti í Vestmannaeyjum er byggð á fyrstu bókinni í gríðarlega vinsælum barnabókaflokki eftir Gunnar Helgason en það er Bragi �?ór Hinriksson, sem leikstýrði Sveppamyndunum, sem leikstýrir myndinni og Eyjapeyinn Haraldur Ari Karlsson er aðstoðarleikstjóri. Ísey Heiðarsdóttir var einn af aðalleikurum myndarinnar, en einnig komu þónokkrir ÍBV strákar við sögu í myndinni. �?að er ljóst að kvikmyndahús landsins verða full alla páskana því það ætlar engin fjölskylda að missa af þessari æðislegu mynd.