Nú þegar rétt rúmar tvær vikur eru í fyrsta leik í Íslandsmótinu hafa menn talsverðar áhyggjur af ástandi knattspyrnuvalla í höfuðborginni, sem margir koma afar illa undan vetri. Sömu sögu er hins vegar ekki að segja um knattspyrnuvellina í Eyjum sem koma vel undan vetri. �?annig er verið að slá Hásteinsvöll í þessum töluðu orðum og aðrir vellir eru í það minnsta orðnir fjarska fallegir. ÍBV á að spila við Fram í fyrsta leik á Laugardalsvelli sunnudaginn 4. maí en miðað við ástand vallarins er ólíklegt að leikurinn fari fram þar. Svo gæti jafnvel farið að félögin víxli leikjum, þ.e. spili í Eyjum í fyrstu umferðinni en engin ákvörðun hefur verið tekin þess efnis.
Hásteinsvöllur fór afar illa síðasta sumar enda sjaldan rignt eins mikið og síðasta sumar. Fyrir vikið náði völlurinn sjaldnast að þorna og undir það síðasta var hann orðinn afar slæmur. Nú eru ljót sár á miðju vallarins en Guðgeir Jónsson, vallarstjóri Golfklúbbs Vestmannaeyja segir að veturinn hafi verið hagstæður og vorið einni. �??Hásteinsvöllur hefur nánast verið grænn í allan vetur en við ætlum að sá í skemmdirnar við fyrsta tækifæri og vonandi verða þær orðnar góðar fyrir fyrsta leik �?g kíkti líka á Helgafellsvöllinn og hann lítur ágætlega út. Reyndar eru skemmdir á honum líka, eins og á öllum völlunum eftir síðasta sumar sem var mjög erfitt.�??
Golfvöllurinn góður
Hvað með golfvöllinn, hvernig kemur hann undan vetri?
�??�?ar er sama sagan. Völlurinn er farinn að grænka og við erum búnir að opna sumarflatirnar á fyrstu tólf holunum. �?að eru alltaf vandræði með flatirnar við hamarinn, 14. og 15. hafa verið leiðinlegar og 17. líka en sú síðastnefnda hefur verið að taka við sér. Við erum að laga þá 15. og vonandi verður 14. flötin flott í sumar,�?? sagði Guðgeir að lokum.