Samningar við vélstjóra og skipstjóra og stýrimenn á Herjólfi hafa verið lausir lengi. Samningaviðræður hafa ekki borið árangur og hafa vélstjórar boðað verkfall. Fyrsta verkfallið verður helgina 25., 26. og 27. nóvember náist samningar ekki. Og svo allar helgar í desember. Þetta kemur fram í vikublaðinu Fréttum sem nú er að koma út.