Verkefnið "Vestmannaeyjar, vettvangur sjávarlíftækni á Íslandi" hlýtur styrk

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir nýsköpunarráðherra kynnti í dag um 29 verkefni sem fá úthlutun úr Lóu-nýsköpunarstyrkjum fyrir landsbyggðina.

Styrkirnir voru auglýstir í febrúar en alls bárust 236 umsóknir í Lóu. Í þessari fyrstu úthlutun fá verkefnin styrki sem nema rúmum 147 milljónum króna. Af þessum 29 verkefnum hlaut verkefnið “Vestmannaeyjar, vettvangur sjávarlíftækni á Íslandi” 10 milljón króna styrk sem var hæsta styrkupphæðin sem veitt var að þessu sinni.

Verkefnið miðar að því að leggja grunn að þeirri framtíðarsýn að í Vestmannaeyjum séu höfuðstöðvar sjávarlíftæknivettvangs Íslands. Umsækjendur verkefnisins eru Þekkingasetur Vestmannaeyja, Rannsóknaþjónusta Vestmannaeyja, Langa og Vestmannaeyjabær. Verkefnastjóri verkefnisins er Dr. Hólmfríður Sveinsdóttir. Samstarfsaðiliar í verkefninu eru Dr. Ásta Dís Óladóttir og Dr. Margrét Þorsteinsdóttir frá Háskóla Íslands, Dr. Rannveig Björnsdóttir frjá Háskólanum á Akureyri, Ingibjörg Sigurðardóttir frá Háskólanum á Hólum, Fóðurverksmiðjan Laxá, Háskólinn í Bergen í Noregi og Arctic Mass.

Dr. Hólmfríður Sveinsdóttir segir að:

„Sjávarlíftækni er sé sú grein sem á eftir að spila lykilhlutverk í því að auka verðmætasköpun í sjávarútvegi til næstu 20 ára, þar sem hún mun gera okkur kleift að vinna verðmætari afurðir úr hliðarafurðum og vannýttum afurðum, t.d. slógi. Miðstöð sjávarlíftækni byggð á breiðum grundvelli eins og ætlunin að gera í verkefninu er ekki til á Íslandi. Vestmannaeyjar er kjörinn staður til að byggja upp miðstöð sjávarlíftækni þar sem mikil þekking á veiðum og vinnslu býr í samfélaginu. Einnig er mikill fjölbreytileiki í aflanum sem kemur að landi. Það er stutt á miðin og þekkingarsamfélagið í kringum sjávarútveg er öflugt.“

Nýjustu fréttir

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.