Vertíðin, strandveiðar og veiðigjöldin
eftir Georg Eið Arnarson
8. júní, 2025
Georg Eiður Arnarson á sjónum. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Nú liggur fyrir ráðgjöf Hafró um hámarksafla á flestum helstu fiskistofnum fyrir næsta fiskveiðiár og þar ber hæðst niðurskurður í þorski, sem merkilegt nokkuð er í samræmi við spá Hafró fyrir ári síðan um að það yrði niðurskurður í þorski á komandi árum. Þetta er mjög sérstakt þegar haft er í huga, að í fjölmörgum tilfellum gegnum árin og áratugina hafa spár Hafró reynst alrangar. Gott dæmi um það er síðasta stóra loðnuvertíð þar sem úthlutað var liðlega 800 þúsund tonnum af loðnukvóta, en í það skiptið veiddist aðeins liðlega 70% af kvótanum og hitt fannst aldrei.

Annað sem er nokkuð augljóst, ef eitthvað mark er takandi á niðurstöðum Hafró, er að uppbygging fiskistofna í gegnum kvótakerfið hefur ekki og mun aldrei takast.

En hvernig er staðan í raun og veru?

Ég man vel fyrstu árin mín í útgerð, en þau nálgast nú óðum 40 árin. Fyrstu árin var þetta þannig að á línuveiðum var alltaf markmiðið að reyna að 100 kg á bjóð að jafnaði. Á nýafstaðinni vertíð sem og sl áratug er þetta þannig að það er ekki komandi nálægt fjörunni allstaðar meðfram suðurströndinni öðruvísi en að fá tonn á bjóð. Staðan núna er mjög einföld. Veiðir á strandveiðum hér í Eyjum í maí voru mjög góðar. Allstaðar er þorskur og það sem er enn betra, þó að hér hafi lítið sést af loðnu, þá hefur reglulega frést af því og það alveg fram í síðasta mánuð að trollbátar hafa verið að fá trollin loðin af loðnu víða í kring um landið.

Núna hinsvegar við suðurströndina er allt vaðandi í síli og síldin er að byrja að láta sjá sig þessa dagana, þannig að allar aðstæður eru fyrir hendi til þess að auka verulega á þorskkvótann fyrir næsta fiskveiðiár, en ákvörðun Hafró er því algjörlega óskiljanleg og í sjálfu sér ef ástandið væri eitthvað nálægt því sem Hafró er að segja okkur, þá væri staðan ekki eins og hún er núna, margir bátar búnir að stoppa og þeir fáu sem eftir eru á miðunum eru helst að reyna að veiða eitthvað annað en þorsk. Nú vantar okkur sjómönnum sárlega að ráðherra sjávarútvegsmála sýni nú smá kjark og taki mark á sjómönnum en ekki þessu endalausa bulli frá Hafró.

Veiðigjöldin

Það er svolítið dapurlegt að fylgjast með umræðum á Alþingi íslendinga um veiðigjöldin og strandveiðarnar, þar sem minnihlutinn er í algjöru bulli og skrítið að horfa á fólk að fjalla um eitthvað sem það hefur ekkert vit á, eða amk flestir.

Auglýsingaherferð SFS er mjög sérstök, vægast sagt, en ef maður skoðar þetta aðeins út frá stærstu fyrirtækjunum hér í Eyjum, þá vita nú flestir að t.d. Vinnslustöðin er sennilega búin að fjárfesta fyrir sennilega hátt í 20 milljarða á síðustu 3 árum, inni í því er að sjálfsögðu kaupin á Þórunni Sveins með öllum aflaheimildum. Svipað gildir um Ísfélagið sem að kaupir sig inn í Ramma, kaupir síðan Sigurbjörgina og nýja Heimaey. Ekki veit ég upp á hvað marga milljarða þessi fjárfesting en ætli það sé ekki amk svipað og hjá Vinnslustöðinni. Að sjálfsögðu segir þetta líka það að svona fyrirtæki geti borgað meira, en auðvitað hefur það líka áhrif á einhverjar fjárfestingar ef veiðigjöldin eru hækkuð, en kannski er vandamálið það að hér hafi kannski verið farið aðeins of bratt í þetta.

Sjálfur er ég á þeirri skoðun, að sennilega væri heppilegast ef veiðigjöld væri ákveðin % tala frekar en krónutala.

Sumir úr ríkisstjórnarmeirihlutanum hafa talað um þessa hækkun veiðigjalda sem leiðréttingu, um það má líka deila og bara svo mín skoðun sé alveg á hreinu varðandi það orðalag, þá þurfti ég að borga upp undir 500 kr í leigu á þorskkílóið í vetur og síðan skila hinum 26 kr á kílóið til ríkisins. Ég hef því engan áhuga á að borga meira til ríkisins næsta vetur og að sjálfsögðu er ekki verið að leiðrétta neitt á meðan leiguliðar þurfi að borga þetta mikið í leigu.

Að lokum þetta, miðað við mína þekkingu og reynslu hefði verið óhætt að bæta verulega við þorskkvótann fyrir næsta fiskveiðiár. Einnig ætti tafarlaust að leyfa bátum að landa lúðu, enda fyrir löngu búið að fylla allar frystikistur á landinu af lúðuflökum. Margt annað mætti gera til þess að auka sátt í íslenskum sjávarútvegi, það eina sem má helst alls ekki gera er að fara eftir tillögum Hafró varðandi þorskinn, enda eru þær tillögur, að mínu mati, byggðar á röngum forsendum.

 

Georg Eiður Arnarson

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.