Vestmannaeyjabær í samstarf við Eimskip í tvíbytnumálinu
�??Í morgun staðfesti Samgöngustofa við mig að þeir myndu ekki leggjast gegn því að skip nákvæmlega eins og Akranesið myndi þjónusta við Vestmannaeyjar yfir þjóðhátíðna. Á svipuðum tíma fengum við hinsvegar þau svör að sú ferja sem við vorum að skoða væri ekki lengur föl,�?? sagði Elliði Vignisson, bæjarstjóri um stöðu mála hvað varðar leigu á tvíbytnu þeirri sem Vestmannaeyjabær var að skoða.�??
�??�?ar sem sú ferja er að öllu leiti sambærileg við Akranesið og með öll sömu skírteini og dugðu til að fá heimild fyrir þá ferju á sama hafsvæði (hafsvæði C) taldi ég því rétt að vinna hugmyndina áfram. Í ljósi þess að Samgöngustofa hugðist ekki gera athugasemd við leigu á skipi eins og Akranesið til nota hér á tilgreindum tíma, og eftir að í ljós kom að ekki væri hægt að leigja tilgreint skip á þessum tíma leitaði Vestmannaeyjabær sem sagt til Eimskipa og óskaði eftir því að fá að leigja þeirra ferju (Akranesið) þess í stað.
Eimskip sagðist ekki hafa heimild til að leigja ferjuna en væri sannarlega fúst til að styðja Vestmannaeyjabæ í því tilraunaverkefni sem vilji er til að ráðast í. �?annig hefur Vestmannaeyjabær náð samkomulagi við Eimskip um kaup á ákveðnum fjölda ferða á þessum dögum. Sem sagt að Akranesið sem er í öllu eins og það skip sem Vestmannaeyjabær hugðist leigja myndi í stað veita þá þjónustu sem stefnt var að.
Við hjá Vestmannaeyjabæ höfum því óskað eftir staðfestingu á því að Samgöngustofa geri ekki athugasemd við að Vestmannaeyjabær og Eimskip ráðist sameiginlega í tilgreint verkefni. Enn og aftur er ítrekað að Akranesið er að öllu leiti eins og sú ferja sem Vestmannaeyjabær hugðist leiga og Samgöngustofa gerði ekki athugasemd við.
Vonandi berast svör við þessu erindi á morgun svo hægt verði að hefja undirbúning núna strax,�?? sagði Elliði
Kveðja
Elliði V

Nýjustu fréttir

Undankeppni Stíls á morgun
Versnandi afkoma bæjarins
Nýtt líf og Leikfélag Vestmannaeyja
Tveir dæmdir eftir þjófnað úr dósagámi ÍBV
Aglow samvera í kvöld
Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.