Víðir Þorvarðarson, 19 ára knattspyrnumaður gekk í dag í raðir ÍBV. Víðir er Eyjapeyi í húð og hár, sonur Þorvarðar Þorvaldssonar og Guðrúnar Ragnarsdóttur en Víðir lék upp í gegnum alla yngri flokka með ÍBV. Hann lék nokkra leiki með KFS áður en hann gekk í raðir Stjörnunnar fyrir sumarið 2009. Hjá Stjörnunni á hann 18 leiki að baki með meistaraflokki í Íslandsmóti og bikarkeppni en í þeim skoraði hann eitt mark.