Fulltrúar Þorlákshafnar krefjast ríflega 1,7 milljóna króna á mánuði í hafnar- og þjónustugjöld fyrir afnot af Þorlákshöfn sem varahöfn fyrir Herjólf. Upphæðin er sú sama og innt var af hendi þegar flutningar milli lands og Eyja fóru að fullu um Þorlákshöfn.