Viljum nálgast verkefnið með uppbyggingu og sátt í huga
Fjölmiðlun er vandasöm enda þau störf meðal þeirra allra mikilvægustu í nútíma samfélögum. Við vinnu sína þurfa blaðamenn og rekstraraðilar fjölmiðla að gæta hlutleysis ef þeir ætlast til að vera teknir alvarlega. �?egar héraðsfréttamiðill fellur í þá gryfju að bera sveitarstjórn á hinu friðsæla Íslandi saman við þau hræðilegu mannréttindabrot sem eiga sér stað í Norður-Kóreu dæmir sá miðill sig þar með úr leik. Miðillinn er ekki að segja fréttir heldur að taka þátt í pólitík og það ansi ljótri.
Alvarleg mannréttindabrot framin í Norður-Kóreu
Á Íslandi ríkir velmegun. Við erum frjáls, fullvalda og mannréttindi tekin mjög alvarlega. Í Norður-Kóreu eru framin alvarleg mannréttindabrot á hverjum einasta degi, fólki er misþyrmt, það svelt, svipt mannvirðingu sinni og jafnvel tekið af lífi. Í Vestmannaeyjum starfar bæjarstjórn sem sækir umboð sitt beint til bæjarbúa.Bæjarfulltrúar sinna störfum sínum af kostgæfni, virðingu og auðmýkt fyrir sínu umboði. Í Norður-Kóreu er einvaldur sem myrðir, rænir og sviptir þegna sína grundvallarréttinum til frelsis.
Ekki lengur hlutlaus miðill
Með grein þar sem störf og ákvarðanir bæjarstjórnar eru bornar saman við Norður-Kóreu tekur steininn úr. Fáum dylst að eyjar.net er ekki lengur hlutlaus miðill heldur leggur miðillinn sig nokkuð hart fram við að róa á mið sundrungar og hikar ekki við að leggja sem flest út á neikvæðan máta fyrir núverandi meirihluta og jafnvel bæjarstjórn alla. �?að er hins vegar skýr réttur miðilsins og eigenda hans að skrifa eins og honum dettur í hug.
Höfum trú á framtíð Vestmannaeyja
Við undirrituð höfum sterka trú á framtíð Vestmannaeyja og viljum leggja okkar af mörkum til að treysta hér byggð á jákvæðum forsendum. Við höfum valið Vestmannaeyjar sem framtíðarvettvang fjölskyldna okkar og viljum vinna með öllum þeim sem eru tilbúnir að nálgast verkefnin á málefnalegum forsendum með uppbyggingu og sátt í huga. Okkur þykir miður að eyjar.net sé í okkar huga hættur að vera almennur hlutlaus héraðsfréttamiðill. Í stað þess að segja hlutlausar fréttir og taka þátt í uppbyggingu Vestmannaeyja er hann orðinn tæki til að vinna að beittum pólitískum tilgangi. �?ar til breyting verður á er okkur sem persónum nauðugur sá kostur að nálgast þennan miðil í því ljósi sem að ofan er greint.
Hildur Sólveig Sigurðardóttir
Trausti Hjaltason
Birna Vídó �?órsdóttir
Bæjarfulltrúar.

Nýjustu fréttir

Frábær skráning á sundnámskeið á vegum Vestmannaeyjabæjar
Framleging á flugi samþykkt fram í miðjan apríl
Aleksandar Linta nýr þjálfari Eyjamanna 
Ágúst Gísli kom, sá og sigraði
Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp
Sundlaugin opnar á ný
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.