Hægt er að fá dælubúnað sem getur dælt sandi úr Landeyjahöfn fyrir 250-300 milljónir. Þennan búnað þarf að setja upp sem allra fyrst. Þetta sagði Árni Johnsen alþingismaður á Alþingi í dag. Árni sagði að því hefði verið haldið fram að þessi búnaður kostaði milljarð, en það væri ekki rétt. Hann sagði að búnaður af þessu tagi gæti dælt sandi úr höfninni og skilað honum 600 metra frá landi. Hann sagði auk þess þörf á að fá nýja ferju til að sigla milli lands og Eyja, en það gæti tekið tvö ár.