Á mánudaginn færði Bjarni Sighvatsson Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja (HV) ómtæki sem hann í samstarfi við marga aðila hefur safnað fyrir. Segir hann þetta lokapunktinn á tækjakaupum til stofnunarinnar sem hann hefur staðið fyrir á undanförnum árum. Í allt eru það 150 til 170 milljónir króna sem hann ásamt fjölskyldu sinni, fyrirtækjum í Vestmannaeyjum og Kvenfélaginu Líkn hefur safnað. Tilgangurinn er að styrkja stöðu sjúkrahússins sem er að því er virðist töpuð barátta að mati Bjarna.