VINNSLUSTÖÐIN KAUPIR BÚNAÐ SEM BREYTIR SJÓ Í DRYKKJARVATN
7. desember, 2023

„Vinnslustöðin hefur fest kaup á þremur gámum með hollenskum tæknibúnaði sem breytir sjó í drykkjarvatn. Ætla má að fyrsti gámurinn komi til landsins milli jóla og nýárs en hinir tveir fljótlega á nýju ári. Tiltölulega einfalt er að tengja búnaðinn við veitukerfi bæjar eða fyrirtækja.“

Þetta kemur fram á heimasíðu Vinnslustöðvarinnar, vsv.is. „Sjó er dælt úr borholum í gegnum öflugt síukerfi sem eingöngu hleypir í gegnum sig vatnssameindinni H2O. Með öðrum orðum breytist sjór í ferlinu í tandurhreint vatn sem laust er með öllu við bakteríur, veirur og yfirleitt allt annað en sjálfa vatnssameindina H2O.

Búnaður í hverjum gámi afkastar um 600 tonnum á sólarhring eða alls um 1.800 tonnum ef allar gámar væru virkjaðir samtímis. Full afköst svara með öðrum til þess að fullnægja mestallri vatnsþörf heimila og fyrirtækja í Vestmannaeyjum. Dælurnar í gámunum eru rafdrifnar, nota tiltölulega lítinn straum og teljast því ekki dýrar í rekstri.

Willum Andersen, tæknilegur rekstrarstjóri Vinnslustöðvarinnar, hóf ákafa leit að tæknibúnaði þessarar náttúru eftir að vatnsleiðslan til Eyja skemmdist við það að akkeri Hugins VE festist í henni. Willum hafði reyndar skyggnst nokkuð um bekki eftir svona búnaði áður þegar fyrir lá að Vinnslustöðin fengi ekki það vatn sem hún þyrfti til starfsemi sinnar ef og þegar loðnuvertíð hæfist í vetur.“

„Síutækni til að hreinsa sjó og gera drykkjarhæfan er vel á mörgum stöðum erlendis, til dæmis í Flórída í Bandaríkjunum, á Arabíuskaga og í mörgum Afríkuríkjum. Ég hafði samband við um 40 framleiðendur búnaðarins um víða veröld en framleiðslutíminn var alls staðar  20 til 40 vikur, sem gekk ekki fyrir okkur. Við þurftum búnaðinn í hvelli!

Svo datt ég óvænt ofan á fyrirtæki í Hollandi sem var að græja þrjá gáma fyrir kaupanda í Afríku og fékk jafnframt að vita að Afríkumennirnir væru hugsanlega reiðubúnir að leyfa Vinnslustöðinni að ganga inn í samning þeirra og bíða sjálfir lengur eftir sínum búnaði. Það reyndist rétt vera. Núna um miðja vikuna fengum við og hollensku framleiðendurnir grænt ljós frá Afríku og í dag var skrifað undir kaupsamninga.

Hver gámur og nauðsynlegur fylgibúnaður kostar jafnvirði 90-100 milljóna króna hingað kominn, auk tengingarkostnaðar hér. Ekki tekur langan tíma að ganga frá tengingum og nauðsynlegum tæknimálum til að hefja vatnsframleiðslu.

Auðvitað liggur fyrir að Vinnslustöðin þarf einungis einn gám til að fullnægja eigin þörfum fyrir vatn. Fyrirtækið heldur að sjálfsögðu einum gámi en mun bjóða Ísfélaginu og Vestmannaeyjabæ að kaupa hina tvo,“ segir Willum.

Meðfylgjandi mynd er frá hollenskum framleiðanda búnaðarins.

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst