Vinnslustöðin skilaði metafkomu 2023 en loðnubrestur skarð í gleðina
5. apríl, 2024

Afkoma Vinnslustöðvarinnar á árinu 2023 var betri en dæmi eru um áður í sögu fyrirtækisins og verður að miklu leyti rakin til uppsjávarveiðanna. Loðnuvertíðin í fyrra var sú gjöfulasta í verðmætum talið frá upphafi vega og verð á mjöli og lýsi var hátt á mörkuðum allt árið 2023. Afkoman á fyrstu mánuðum liðins rekstrarárs lofaði því góðu um árið allt þegar það yrði gert upp, sem og kom á daginn.

Rekstur félagsins gekk vel 2023 þegar á heildina er litið með þeim undantekningum þó að það gætti sölutregðu frosinna botnfiskafurða og tilheyrandi verðlækkunar á mörkuðum í Bandaríkjunum, Bretlandi og Frakklandi. 

Metvertíð loðnu í fyrra fylgir loðnuleysisár nú með þeim afleiðingum sem slíkt hefur fyrir sjávarútveginn, byggðarlögin þar sem uppsjávarveiðar eru stoðir í atvinnulífi og fyrir sjálft þjóðarbúið. 

Loðnubresturinn nú er til vitnis um hve sveiflukennd atvinnugrein sjávarútvegur er og mikilli óvissu háður um skilyrði og takmörk sem móðir náttúra setur starfsemi hans á hverjum tíma.

Þetta kom fram á ársfundi Vinnslustöðvarinnar í gær, 4. apríl.

  • Vinnslustöðin gerir upp í evrum. Velta samstæðu hennar nam jafnvirði um 35 milljarða króna á árinu 2023.
  • Hagnaður VSV-samstæðunnar nam jafnvirði um 4,5 milljarða króna.
  • Aðalfundurinn samþykkti að hluthafar fái greiddar jafnvirði um 900 milljóna króna í arð vegna ársins 2023 en stjórn félagsins er jafnframt heimilað að lækka þá fjárhæð eða hætta við að greiða út arðinn ef aðstæður breytast þegar líður á árið.

Kaupin á Ósi og Leo Seafood

Langstærsta fjárfesting Vinnslustöðvarinnar á árinu 2023 var kaup á útvegs- og fiskvinnslufyrirtækjunum Ósi ehf. og Leo Seafood ehf. af Sigurjóni Óskarssyni útgerðarmanni og fjölskyldu hans í Vestmannaeyjum. Vinnslustöðin tók formlega við útgerð Þórunnar Sveinsdóttur VE og rekstri Leo Seafood á sumardeginum fyrsta í fyrra. 

Við kaup félaganna tveggja stækkaði efnahagur VSV-samstæðunnar um liðlega 40% og stöðugildum samstæðunnar fjölgaði um 90.

Nú eru stöðugildi í Vinnslustöðinni alls 460, þar af 400 á Íslandi og 60 erlendis.

Byggingaframkvæmdir og skipasmíðar

Hafnar eru umfangsmiklar byggingaframkvæmdir á lóð Vinnslustöðvarinnar og gert ráð fyrir að þeim ljúki á árinu 2025. Gömul og úrelt hús voru rifin og í staðinn rís tveggja hæða steinhús á tveimur hæðum, alls um 5.600 fermetrar, sem í verður saltfiskvinnsla á neðri hæð og á efri hæð innvigtun uppsjávarafla, flokkun og flökun sem uppfyllir allar kröfur reglugerðar þar að lútandi.

Vinnubúðir hafa verið settar upp í grenndinni handa aðkomnum iðnaðarmönnum og öðrum sem starfa munu við framkvæmdirnar. 

T.ark arkitektar hanna bygginguna en Eykt ehf. er aðalverktaki.

Þá kom fram á aðalfundinum að Vinnslustöðin muni bjóða út smíði tveggja skipa til að leysa af hólmi Kap og Drangavík. Þau eru hönnuð með orkusparnað í huga. 

Kröfum bæjarstjórnar vegna vatnslagnar svarað

Guðmundur Örn Gunnarsson, formaður stjórnar Vinnslustöðvarinnar, vék í skýrslu stjórnar að óhappi sem átti sér stað í nóvember 2023 þegar eitt skipa félagsins, Huginn VE, olli tjóni á vatnsleiðslunni milli meginlands og Eyja. Hann sagði eftirfarandi um málið:

Þetta var óhapp hafði afleiðingar sem eigendur og stjórnendur Vinnslustöðvarinnar tóku nærri sér og lögðu sig eftir að draga úr skaðanum að svo miklu leyti sem þeim var unnt miðað við aðstæður.

Vinnslustöðin og öll fyrirtæki innan samstæðunnar eru að sjálfsögðu tryggð gagnvart tjóni af ýmsu tagi í starfsemi sinni. Vátryggingabætur eru greiddar samkvæmt gildandi skilmálum, lögum og alþjóðlegum samningum. 

Tryggingafélag Vinnslustöðvarinnar, VÍS, hefur viðurkennt bótaskyldu vegna vatnsleiðslunnar að tilteknu hámarki samkvæmt siglingalögum. Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti á dögunum að „sækja frekari bótagreiðslur til útgerðarinnar til að tryggja skaðleysi íbúa Vestmannaeyjabæjar vegna tjónsins“, eins og það er orðað. 

Vinnslustöðin svaraði fyrir sína hönd og fellst ekki á erindið enda eru slíkar „umframbætur“ án fordæma að því er við best vitum og engan veginn í samræmi við þau lög og alþjóðasamninga sem um slík tjón gilda.

Vinnslustöðin hefur kappkostað að hafa vátryggingavernd sem uppfyllir allar kröfur sem eðlilegar geti talist. Okkur þykir miður ef tjónabæturnar duga ekki til að bæta tjónið að fullu en endanlegt mat tjónsins liggur ekki fyrir.

Ef eigendur vatnsleiðslunnar hefðu vátryggt vatnsleiðsluna myndi sú vátrygging bæta það tjón umfram hið lögbundna hámark ef tjónið væri hærra.

Mynd Atli Rúnar Halldórsson.

Aðal- og varastjórn Vinnslustöðvarinnar var endurkjörin á fundinum. Frá vinstri: Einar Þór Sverrisson varaformaður, Guðmunda Áslaug Bjarnadóttir, Eyjólfur Guðjónsson, Sigurhanna Friðþórsdóttir, Rut Haraldsdóttir, Guðmundur Örn Gunnarson stjórnarformaður, Herdís Ásu Sæmundardóttir og Sigurjón Rúnar Rafnsson.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst