Vinnslustöðin sýnir sig og sér aðra í Kína

„Kína er gríðarlega stór og mikill markaður og Vinnslustöðin hefur sótt þar verulega í sig veðrið og aukið hlut sinn á allra síðustu árum. Það hjálpar okkur og styður að taka þátt í sýningunni. Útflutningur sjávarafurða frá Kína hefur dregist saman en innflutningur hins vegar aukist stórlega. Við viljum svara kalli markaðarins og aukinni eftirspurn,“ segir Björn Matthíasson, framkvæmdastjóri VSV Seafood Iceland, sölufyrirtækis Vinnslustöðvarinnar.

Björn, Sigurgeir B. Kristgeirsson framkvæmdastjóri, Sverrir Haraldsson, sviðsstjóri bolfiskvinnslu, og Yohei Kitayama, sölumaður VSV Japan, hafa í vikunni tekið þátt í árlegri sjávarútvegssýningu í borginni Qingdao í Kína. Sýningin er risavaxin og hefur mikil áhrif á þróun sjávarútvegs og markaða fyrir sjávarafurðir í Kína og reyndar ná áhrifin að einhverju leyti til allrar veraldar.

  • Sýningin heitir fullu nafni China Fisheries & Seafood Expo og er nú haldin 24. árið í röð.
  • Sýnendur eru um 1.600 frá 53 ríkjum, þar á meðal er Vinnslustöðin með sýningarbás líkt og undanfarin ár.
  • Talið er að sýningargestir í ár hafi verið um 50.000!

Nýjustu fréttir

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.