Vinnslustöðin er í 11. sæti af 358 fyrirtækjum sem að mati Creditinfo verðskulda viðurkenninguna, Framúrskarandi fyrirtæki ársins 2012. Koma þessi fyrirtæki af lista yfir rúmlega 32 þúsund fyrirtæki sem skráð eru í hlutafélagaskrá þannig að árangur Vinnslustöðvarinnar er mjög athyglisverður. Fyrirtækin eru í mjög mismunandi rekstri og eru sjávarútvegs- fyrirtæki nokkuð áberandi í hópi þeirra bestu. Alls eru átta fyrirtæki í Vestmannaeyjum á listanum og kemur Huginn ehf. næst Vinnslustöðinni í 22. sæti. Að mati Creditinfo tróna Vestmannaeyjar á toppi listans sé miðað við íbúafjölda.