Styttingu vinnutíma var til umræðu á fundi bæjarráðs í vikunni. Samið var um styttingu vinnutíma í nokkrum kjarasamningum launanefndar sveitarfélaga og einstakra stéttarfélaga við gerð nýlegra samninga. Skipaður hefur verið sérstakur innleiðingarhópur samningsaðila, þ.e. tveimur fulltrúum frá Kjarasviði Sambands íslenskra sveitarfélaga og BSRB, BHM og ASÍ, einum fulltrúa frá hverjum aðila, sem verður starfræktur á gildistíma kjarasamningsins.
Markmið styttingar vinnutímans er að bæta lífskjör og auðvelda samræmi á milli vinnu og einkalífs. Styttingin hefur einnig það að markmiði að bæta vinnustaðamenningu og auka skilvirkni og þjónustu. Sveitarfélögum er gert að innleiða umræddar breytingar á styttingu vinnutíma dagvinnufólks eigi síðar en 1. janúar 2021 og breytingar á styttingu vinnutíma vaktavinnufólks eigi síðar en 1. mai 2021. Gefnar hafa verið út leiðbeiningar um hvernig þeirri vinnu skuli háttað. Sveitarfélög skipi þannig sérstaka vinnutímanefnd, sem annast verkefnisstjórn, greiningu og stöðumat á sveitarfélaginu og samskipti við sveitarstjórnir og innleiðingarhóp. Vinnutímanefnd leiðir samtöl forstöðumanna og starfsfólks á hverjum vinnustað.
Bæjaryfirvöld kölluðu eftir tilnefningum fulltrúa starfsfólks frá Stavey, Drífanda og BHM og leggur til eftirfarandi skipan vinnutímanefndar Vestmannaeyjabæhar:
Eydís Ósk Sigurjónsdóttir, mannauðsstjóri og fulltrúi stjórnsýslu- og fjármálasviðs,
Unnur Sigmarsdóttir fulltrúi starfsfólks í Stavey
Arnar G. Hjaltalín, fulltrúi starfsfólks í Drífanda
Beðið er tilnefningar frá BHM
Jón Pétursson, framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs
Ólafur Snorrason, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs
Verður Eydís Ósk formaður nefndarinnar. Nefndin mun skipuleggja vinnuna og ákveða nánari útfærslu í samráði við forstöðumenn. Nefndin mun bera verklag, áherslur og útfærslur undir bæjarstjóra og framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.