
Eyþór Harðason útgreðastjóri hjá Ísfélaginu sagði í samtali við Eyjafréttir að þeir hefðu klárað veiðar á norsk íslensku síldinni um miðjan nóvember, sem var um 15.000 tonn. Aðspuður hvort meiri vinnu væri að hafa fyrir fólk í landi hjá Ísfélaginu á Þórshöfn en í Eyjum sagði Eyþór að norks íslenska síldin hefði verið unnin á Þórshöfn að mestu leiti, „eins og við höfum gert undanfarin 10 ár, eða síðan Ísfélagið hóf rekstur þar.“
„Nú eru að hefjast veiðar úr íslenska síldarstofninum og því miður hefur sýking í síldinni verið að stríða okkur og fyrsti farmurinn af Álsey fór í bræðslu. En við megum ekki gleyma því að síldarmjöl er eftirsótt vara og ekki hægt að tala þannig að um sóun sé að ræða þó svo að síld til manneldis skapi meiri vinni í samfélaginu,“ sagði Eyþór. Ísfélagið á tæp 4000 tonn af síld úr íslenska stofninum, „vonandi finnst eitthvað af síld við landið sem verður hæf til manneldisvinnslu í frystihúsinu.“
„Síðustu vikur hafa bolfiskskip Ísfélagsins, Ottó og Dala Rafn, landað reglulega í Eyjum og haldið uppi fullri vinnu í frystihúsinu,“ sagði Eyþór að endingu.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.