Vöruhúsið opnar - myndir
11. maí, 2024
DSC_0565
Eigendur Vöruhússins. Eyjar.net/Óskar P. Friðriksson

Vöruhúsið opnaði dyr sínar í dag, laugardaginn 11.maí. Vöruhúsið er fjölskyldurekinn veitingastaður í Vestmannaeyjum, nánar tiltekið á Skólavegi 1.

Eyjar.net ræddi við Anton Örn Eggertsson, einn af eigendum staðarins, en auk hans eiga þau Róbert Agnarsson, Hildur Rún Róbertsdóttir og Sigrún Ósk Ómarsdóttir staðinn.

„Matseðillinn er fjölbreyttur og ættu flestir að geta fundið sér rétt sem þeim lýst vel á, bæði börn og fullorðnir. Við viljum sérstaklega taka fram að við erum með lítið barnahorn fyrir krakkana sem verður vonandi til þess að börnunum líði sem best hjá okkur. Markmiðið er að veita persónulega þjónustu við viðskiptavini og skapa notalegt andrúmsloft.“

Nóg eftir og við verðum aldrei búin

Aðspurður um hvernig það sé að sjá fyrir endann á framkvæmdum og sjá staðinn opna segir Anton að það sé einstaklega skemmtilegt.

„Þó má ekki gleyma að það er nóg eftir og við verðum aldrei búin, enda vinna að viðhalda gæðum og snyrtileika staðarins. Robbi tengdapabbi er algjör þúsundþjalasmiður svo við erum mjög heppin að hafa hann með okkur í þessu.“

Spurður út í opnunartímann segir Anton að staðurinn verði opinn frá kl. 11-21:30. Svo seinna meir langar okkur að hafa barinn opinn lengur með skemmtilegri kokteil stemningu. Vonum að viðskiptavinir taki vel í það þegar þar að kemur.

Einhver sagði mér að til standi að vera með pall sunnan megin við staðinn – stemmir það?

Það á allt eftir að koma í ljós en við vonumst til að geta þróað staðinn okkar með tímanum í takt við þarfir viðskiptavina.

Heppin með fólkið í kringum okkur

Að endingu vilja eigendurnir koma á framfæri hjartans þökkum til allra þeirra sem hafa aðstoðað þau á eitthvern hátt.

„Það þarf aðkomu margra aðila til að opna veitingastað og erum við ekkert smá heppin með fólkið í kringum okkur. Við tökum vel á móti öllum sem vilja gefa okkur tækifæri og vonumst til að fólki líði vel hjá okkur. Að lokum viljum við koma á framfæri að starfshópurinn er að læra inn á staðinn og hvert annað en taka á móti öllum með hlýju viðmóti og spennt að þjóna viðskiptavinum okkar. Sjáumst í Vöruhúsinu!“

Tæplega aldargamalt hús

Húsið Vöruhúsið við Skólaveg 1 var byggt fyrir Einar Ríka árið 1926. Þegar geymsluhúsið Marland var ennþá uppi var hægt að ganga í kjallara Vöruhússins í þar til gerðum göngum. Lengst af var verslað með matvöru í Vöruhúsinu; Bæjarbúðin, Verslun Guðjóns Scheving og Eyjakjör voru slíkar verslanir en einnig var raftækjaverslunin Kjarni þar til húsa. Einnig var Bókabúðin Helgafell þarna til húsa auk Ragga rakara, ljósmyndastofu og Athafnaverinu. Verbúðir voru líka í húsinu í fyrri tíð, segir í umfjöllun á vefnum Heimaslóð. Í seinni tíð hafa nokkrir veitingastaðir verið í húsinu auk fataverslana. Lengst af var þar staður undir nafninu Café Maria.

voruhusid_24_tms
Vöruhúsið. Eyjar.net/TMS

Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjar.net leit við í Vöruhúsinu í gær þegar verið var að taka lokarennslið fyrir formlega opnun.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.