KFS hefur fengið öflugan liðsstyrk en Yngvi Magnús Borgþórsson hefur gengið í raðir félagsins en hann kemur frá ÍBV.
Yngvi er miðjumaður sem getur einnig leikið sem miðvörður. Áður en Yngvi fór til ÍBV lék hann með KFS. Yngvi hefur lítið fengið að spila í ár og eru þetta því góð tíðindi fyrir KFS.