Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um fjölda erlendra ríkisborgara sem eru með skráða búsetu hér á landi eftir sveitarfélögum. Tölurnar miðast við 1. desember 2020.
Hlutfall erlendra ríkisborgara er afar breytilegt milli sveitarfélaga þó að jafnaði sé hlutfallið um 14% þegar horft er til allra sveitarfélaga.
Í Vestmannaeyjum er hlutfall erlendra ríkisborgara tæp 12% eða 515 af 4.330 íbúum. Hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara eru í Mýrdalshreppi. Alls eru 47,3% íbúa hreppsins með erlend ríkisfang. Þann 1. desember sl. voru 361 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu í Mýrdalshreppi af alls 764 íbúum hreppsins.
Næst hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara er í Skaftárhreppi með 33,2% og Súðavíkurhreppur með 31,2% íbúa.
Þess má geta að það sveitarfélag sem er með lægsta hlutfall íbúa með erlend ríkisfang er Árneshreppur en einn íbúi hreppsins er með erlend ríkisfang í hreppnum sem gerir rúmt 2,5% íbúa.
Þegar horft er til landshluta þá er hæsta hlutfall íbúa með erlend ríkisfang á Suðurnesjum með 23,4% íbúa og Vestfirðir koma næst með 17,1% íbúa. Lægsta hlutfall íbúa með erlend ríkisfang er á Norðurlandi eystra með 8,2%.
Hér má sjá töflu yfir fjölda erlendra ríkisborgara eftir sveitarfélögum þann 1. desember 2020.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.