12% íbúa erlendir ríkisborgarar

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um fjölda erlendra ríkisborgara sem eru með skráða búsetu hér á landi eftir sveitarfélögum. Tölurnar miðast við 1. desember 2020.
Hlutfall erlendra ríkisborgara er afar breytilegt milli sveitarfélaga þó að jafnaði sé hlutfallið um 14% þegar horft er til allra sveitarfélaga.

Í Vestmannaeyjum er hlutfall erlendra ríkisborgara tæp 12% eða 515 af 4.330 íbúum. Hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara eru í Mýrdalshreppi. Alls eru  47,3% íbúa hreppsins með erlend ríkisfang. Þann 1. desember sl. voru 361 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu í Mýrdalshreppi af alls 764 íbúum hreppsins.
Næst hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara er í Skaftárhreppi með 33,2% og Súðavíkurhreppur með 31,2% íbúa.
Þess má geta að það sveitarfélag sem er með lægsta hlutfall íbúa með erlend ríkisfang er Árneshreppur en einn íbúi hreppsins er með erlend ríkisfang í hreppnum sem gerir rúmt 2,5% íbúa.

Þegar horft er til landshluta þá er hæsta hlutfall íbúa með erlend ríkisfang á Suðurnesjum með 23,4% íbúa og Vestfirðir koma næst með 17,1% íbúa. Lægsta hlutfall íbúa með erlend ríkisfang er á Norðurlandi eystra með 8,2%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda erlendra ríkisborgara eftir sveitarfélögum þann 1. desember 2020.

Nýjustu fréttir

Viðgerð Herjólfs dregst fram í júlí
Standa þarf vörð um hafrannsóknir
Stórseiðahús reist á aðeins tíu mánuðum
Hafró leggur til minni þorskkvóta en mikla aukningu í loðnu
Leiðin liggur á Eyjuna fögru
Enn að eftir 40 ár sem blaðamaður
Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar
Sjómannakaffið – ÍBV-stelpurnar tóku við keflinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.