17 fjölskyldur í Vestmannaeyjum fá matarúttekt frá Krónunni fyrir jólin
Verslun Krónunnar í Vestmannaeyjum

Krónan hefur afhent Styrktarsjóði Landakirkju 17 gjafakort sem safnað var fyrir í jólasöfnun Krónunnar á aðventunni. Þá bauðst viðskiptavinum að styrkja hjálparsamtök sem sjá um matarúthlutanir í sínu nærsamfélagi í aðdraganda jóla og jafnaði Krónan þá upphæð á móti. Viðskiptavinir Krónunnar í Vestmannaeyjum, ásamt Krónunni söfnuðu alls 340 þúsund krónum en samtals söfnuðust 12 milljónir króna í jólastyrkjasöfnun matvöruverslunarinnar um allt land.

Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar:

„Markmið okkar fyrir þessi jól var að styrkja 500 fjölskyldur en í fyrra hlutu 450 fjölskyldur stuðning í formi matarúthlutana. Í samvinnu við okkar kæru viðskiptavini náðum við þessu markmiði og gott betur en 600 fjölskyldur fá matarúthlutun í ár vegna söfnunarinnar. Þetta er í fjórða sinn sem við bjóðum viðskiptavinum að láta gott af sér leiða á aðventunni og hefur ávallt verið tekið vel í þetta framtak. Jólamánuðurinn getur verið erfiður á mörgum heimilum og því er þetta samvinnuverkefni okkur afar mikilvægt.“

Söfnunin fór þannig fram að viðskiptavinum bauðst að styrkja fyrir 500 krónur eða meira og Krónan jafnaði sömu upphæð á móti. Upphæðin rennur beint til hjálparsamtaka í nærsamfélagi sem styðja þau sem þurfa á mataraðstoð að halda fyrir jólin. Styrkirnir eru veittir í formi gjafakorta svo að styrkþegar geti sjálfir valið í sína matarkörfu fyrir hátíðirnar.

Góðgerðarsamtökin sem hljóta styrki í formi gjafakorta frá viðskiptavinum og Krónunni í ár eru Velferðarsvið Reykjanesbæjar, Selfosskirkja, Sjóðurinn góði í Árnessýslu, Stórólfshvolskirkja, Rauðikross Víkursvæðis, Styrktarsjóður Landakirkju, Jólasjóður Fjarðabyggðar, Velferðarsjóður Eyjafjarðarsvæðis, Mæðrastyrksnefnd Akraness, Mæðrastyrksnefnd Kópavogi, Soroptimistaklúbbur Mosfellssveitar, Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar og Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur.

Nýjustu fréttir

Elliði maður leiksins og Ísland í undanúrslit
Beðið með eftirvæntingu eftir loðnuráðgjöf
KR-ingur á láni til ÍBV
Elliði Snær skoraði átta mörk í jafntefli Íslands
Fylgi flokkanna í Eyjum
Komu inn vegna veðurs
Afslættir hverfa með bættu raforkuöryggi
Jason Stefánsson meðal útskriftarnema FÍV 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.