Sagan öll, eins og hún er.

Í þjóðhátíðarblaði Vestmannaeyja 2007 ræðir Árni Johnsen um brotthvarf sitt úr starfi kynnis á Þjóðhátíð á vægast sagt dapurlegan hátt.  Það er ekki óskaverkefni Þjóðhátíðarnefndar rétt fyrir hátíðina að þurfa að svara leirburði af þessu tagi, en hjá því verður ekki komist. Ummælin eru bæði ósönn og ærumeiðandi. Árni reynir líka að afla sér samúðar með því að skapa sér stöðu fórnarlambs í málinu og segir meðal annars
 ,, Það hlýtur alltaf að vera óvænt ef mönnum er hent fyrir borð “.
 
Sannleikurinn er sá að á Brekkusviðinu á sunnudagskvöldi árið 2005 þegar mikill fjöldi tónlistarmanna sem þátt tók í Þjóðhátíðinni söng ,, Lífið er yndislegt “meðan blysin loguðu, missti Árni illilega stjórn á skapi sínu. Árni fór um sviðið með formælingum og endaði á því að slá forsöngvarann og höfund lagsins Hreim Heimisson. Við þessa uppákomu fór allt úr böndunum., hljómsveitir neituðu meðal annars að spila. Það tók Þjóðhátíðarnefnd þó nokkurn tíma að róa vitni að árásinni og koma lagi á dagskrána.

Eins og ávallt voru allir fjölmiðlar staddir á hátíðinni og fréttir á Rúv greindu frá atburðinum strax kl. 01.00. Gjörsamlega friðlaust var fyrir fjölmiðlum alla nóttina. Í kjölfar hátíðarinnar fer af stað ótrúlegur farsi. Hreimur fullyrðir í fjölmiðlum að Árni hafi slegið sig, Árni neitar hins vegar staðfastlega. Þjóðhátíðarnefnd gerði ítarlega könnun meðal vitna að atburðinum sem öll voru á einn veg. Árni hafði slegið Hreim.

Á þriðjudegi eftir Þjóðhátíð og málið enn í fullum gangi í fjölmiðlum óskar Árni eftir fundi með Þjóðhátíðarnefnd. Á þeim fundi lagði Árni fram yfirlýsingu sem var eindregin stuðningur við hans málstað og óskaði eftir því að Þjóðhátíðarnefnd skrifaði upp á plaggið. Í ljósi þeirrar könnunar sem nefndin hafði gert var alls ekki stætt á því að kvitta á plaggið, Árni hafði slegið starfsmann nefndarinnar og farið með ósannindi í fjölmiðlum. Allir nefndarmenn neituðu.

Margir listamenn og skemmtikraftar settu sig í samband við nefndarmenn og tilkynntu að ef nefndin tæki ekki á málinu myndu þeir ekki starfa framar við hátíðina. Fjölmiðlar sóttu mjög hart á yfirlýsingu frá Þjóðhátíðarnefnd þessa daga. Það var hins vegar ekki fyrr en Hreimur Heimisson féllst á að falla frá hugsanlegri kæru á hendur Árna ef yfirlýsing sem innhéldi það rétta í málinu bærist frá Þjóðhátíðarnefnd að ákveðið var að aðhafast. Í kjölfar þess á fimmtudegi sendi nefndin frá sér yfirlýsingu þess efnis að hún harmaði framkomu starfsmanns hátíðarinnar í garð Hreims Heimissonar á brekkusviðinu á sunnudagskvöldinu. Árni var ekki nafngreindur í yfirlýsingunni. Þá loksins lygndi.

Þessi atburðarás varð til þess að Þjóðhátíðarnefnd tók þá ákvörðun einróma að skipta um kynni. Það skal tekið fram að þetta er ekki í fyrsta og eina skiptið sem Árni missir stjórn á sér á Brekkusviðinu og sýnir af sér dómgreindarskort. Árna var svo tilkynnt ákvörðun nefndarinnar nokkrum vikum fyrir Þjóðhátíð á fundi í Herjólfsdal og farið yfir ástæður, sem eru þær sömu og hér hafa verið tíundaðar. Af virðingu við margra ára starf Árna við Þjóðhátíð var tekin sú  ákvörðun að leyfa honum að segja sig frá starfi kynnis sjálfur, hefja hátíðina sem auglýstur kynnir og kveðja á föstudagskvöldi og kynna arftakann. Þetta tókst vel og umræða fjölmiðla eingöngu jákvæð. Ágætur endir á erfiðu máli.

Það er því með ólíkindum að lesa ummæli Árna í Þjóðhátíðarblaðinu. Ummæli á borð við.
 ,, Það var broslegt þegar Páll Scheving tilkynnti mér á skyndifundi standandi á hlaupabrautinni í dalnum vilja hans og Tryggva Sæmundssonar gegn vilja Bigga Gauja formanns nefndarinnar. Þeir vildu að ég hætti sem  þulur en héldi áfram með Brekkusönginn. Þá sagði ég í rólegheitunum við Pál og ekki að ástæðulausu; – er pólitík í þessu , Palli? Hann byrsti sig ógurlega og sagði; – ef þú talar svona til mín þá færð þú ekkert að vera á Þjóðhátíð-. Þetta fannst mér hreystilega mælt því mér hafði aldrei dottið sjálfum  í hug að hægt væri að banna nokkrum að vera á Þjóðhátíð Vestmannaeyja.En þarna fékk ég svar við spurningu minni.

Fyrst af öllu þá funduðu Páll Scheving og Birgir Guðjónsson saman með Árna í Herjólfsdal og tilkynntu honum einróma ákvörðun nefndarinnar og færðu fyrir henni rök. Það hefur aldrei verið til ágreiningur um þessa ákvörðun innan nefndarinnar. Það er því makalaust af Árna halda því fram að nefndin hafi verið klofin á málinu.  Hins vegar er rétt hjá Árna að hann spurði Pál að því hvort pólitík væri í málinu, en helber þvættingur að Páll hafi brugðist við með þeim hætti er Árni lýsir. Páll sagði spurninguna ósanngjarna og að Þjóðhátíðarnefnd starfaði ekki þannig. Sem hún hefur aldrei gert.

Það er hreint magnað að Árni skuli halda því fram að pólitík hafi ráðið því að breytingar voru gerðar. Aldrei minnist Árni á það í viðtalinu í Þjóðhátíðarblaðinu að hann hafi slegið starfsmann á Brekkusviðinu árið áður og Páll og Birgir hafi farið yfir það með honum. Það er að vísu óþægilegra og passar illa hlutverki fórnarlambsins. Kannski finnst honum það ekki koma málinu við. Fer ekki að verða tímabært að líta í eigin barm. Stunda örlitla sjálfsgagnrýni í stað þess að fara fram með ósannindum og sverta mannorð þeirra sem þó reyndu að milda eins og kostur var áhrif af ömurlegri framkomu hans.

Þjóðhátíðarnefnd ber ábyrgð á framkvæmd hátíðarinnar. Það er mikilvægt fyrir Þjóðhátíðarnefnd að þeir sem veljast til stjórnunarstarfa á hátíðinni hafi stjórn á sjálfum sér. Það er einnig mikilvægt að stjórnendur leysi vandamál en framleiði þau ekki. Nefndin treysti sér einfaldlega ekki lengur til að bera ábyrgð á Árna Johnsen sem kynni á Brekkusviðinu. Það er lykilatriði í málinu. Lái okkur hver sem er.

Ummæli Árna í Þjóðhátíðarblaðinu eru aumkunnarvert yfirklór. Þjóðhátíðarnefnd kýs að skoða þau sem tæknileg mistök. 

Þetta er sagan og síðustu orð Þjóðhátíðarnefndar varðandi þetta mál.

Þjóðhátíðarnefnd.

Páll Scheving Ingvarsson
Birgir Guðjónsson
Tryggvi Már Sæmundsson

 

 

 

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland

Foreldrar

Laura Vähätalo og Orri Arnórsson
76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn

Foreldrar

Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson
Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon
Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson
462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.
Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.

Foreldrar

Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.
Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir
Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson
F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.

Foreldrar

Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir
Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.
E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes

Foreldrar

Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson
Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Todor Hristov og Marta Möller
Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík

Foreldrar

Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson
Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani
IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi

Foreldrar

Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason
tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir
nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík

Foreldrar

María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson
jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir
Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík

Foreldrar

Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.