Önnur árásarkvennanna yfirheyrð í Eyjum

Búið er að yfirheyra aðra konuna sem réðst á 28 ára gamla konu fyrir utan skemmtistaðinn Sólon síðastliðna helgi. Konan var kölluð til skýrslutöku í Eyjum í gær en sleppt að því loknu því ekki þótti ástæða til að handtaka hana vegna málsins. Konan sem ráðist var á hefur legið á spítala í fimm daga og gengist undir aðgerð á eyra.  Tuttugu og átta ára kona varð fyrir hrottafenginni líkamsárás tveggja kvenna um tvítugt, í biðröð við skemmtistaðinn Sólon í miðborginni síðastliðið laugardagskvöld. Hún var dregin á hárinu eftir gangstéttinni, sparkað í hana og bitið var stórt stykki af eyra hennar. Konan var í biðröð fyrir utan skemmtistaðinn Sólon með vinkonu sinni og frænku. Önnur árásarkvennanna kastaði bjórflösku í frænku konunnar. Þegar konan gerði athugasemd við það, var ráðist á hana. Konan þurfti að gangast undir aðgerð á eyra og hefur legið á spítala í fimm daga. Sigurbjörn Víðir Eggertsson aðstoðaryfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu segir að árásárkonurnar tvær hafi farið til Eyja fyrir helgina. Lögreglan í Eyjum yfirheyrði aðra þeirra í gær en henni var svo sleppt að því loknu. Óvíst er hvort hin verði yfirheyrð í Eyjum en Sigurbjörn segir að hún verði þá yfirheyrð strax eftir helgi. Hann segir að ekki hafi þótt ástæða til að handtaka konurnar í Eyjum og flytja þær til Reykjavíkur vegna málsins. Enn standi yfir rannsókn og búið sé að ná til allra vitna og þeirra sem koma að málinu.

Nýjustu fréttir

Tómas Bent lék allan leikinn í sigri Hearts
Óskar stefnir á þriðja sætið hjá Sjálfstæðisflokki
Bjargið fær rausnarlega gjöf
Loðnufrysting í fullum gangi
Emil skoraði í sigri Íslands á Eistum
Fjórtán gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Líflegur laugardagsmorgunn – fullfermi og loðnuvinnsla í fullum gangi
Sækist eftir 3. sæti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.