Góður liðsstyrkur væntanlegur í meistaraflokkinn

Sigurjón Örn Lárusson heitir sá kappi og er 195cm á hæð. Spilar hann sinn fyrsta leik fyrir félagið strax eftir áramót. Mun Sigurjón styrkja liðið mikið og ekki verra að fá fleiri góða á æfingarnar hér í eyjum.Næsta sunnudag mun Sigurjón hinsvegar leika sinn síðasta leik fyrir körfuknattleikslið Stjörnunnar þar sem hann hefur ákveðið að flytjast búferlum til Vestmannaeyja ásamt kærustu sinni Berglindi Þórðardóttur og barni. Brotthvarf Sigurjóns er nokkur blóðtaka fyrir nýliða Stjörnunnar en Sigurjón hefur alla sína tíð leikið í Garðabænum og fór á kostum á síðustu leiktíð þegar Stjarnan tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni eftir oddaleik í úrslitakeppni 1. deildar gegn Valsmönnum.

Mun Sigurjón brátt hefja störf hjá Deloitte endurskoðunarstofu í Vestmannaeyjum. Sigurjón gerði 6,3 stig að meðaltali í leik með Stjörnunni á þessu tímabili ásamt því að taka alls 29 fráköst í sjö leikjum en þau munu án efa verða fleiri með okkur í 2.deildinni. Hann leikur kveðjuleik sinn með Stjörnunni á sunnudag þegar nýliðarnir taka á móti ÍR og er væntanlegur til eyja á miðvikudag n.k.

Bjóðum við Sigurjón Örn velkominn til Vestmannaeyja og til liðs við ÍBV.

Áfram ÍBV.

Nýjustu fréttir

Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Fyrri ferð föstudags felld niður
Elliði Snær markahæstur gegn Svíum
Laxey á Seafood Expo North America
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028
Vatn loksins farið að renna í laugina
Eyjalistinn tilbúinn – Miðflokkurinn kynnir sinn lista í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.