Í dag undirrituðu ÍBV og Sparisjóður Vestmannaeyja samstarfssamning sín á milli og var samningurinn undirritaður í húsnæði Sparisjóðs Vestmannaeyja. Sparisjóðurinn hefur lengi verið bjakhjarl ÍBV.
Í dag eru liðinn 65.ár frá stofnun Sparisjóðs Vestmannaeyja og því við hæfi að undirrita þennan samning í dag.
Fréttatilkynning vegna þessa samstarfssamning er hér að neðan:
Í dag, 3. desember undirrituðu Sparisjóður Vestmannaeyja og ÍBV Íþróttafélag samsstarfssamning til næstu þriggja ára. ÍBV og Sparisjóðurinn hafa átt í farsælu samstarfi frá stofnun ÍBV Íþróttafélags í desember 1996 og er þessi samningur staðfesting á áframhaldandi farsælu samstarfi. Sparisjóðurinn hefur alla tíð verið einn af aðalstyrktaraðilum ÍBV og verður það áfram. Íþróttafélagið metur það af verðleikum og er samningurinn sem er undirritaður núna sá stærsti sem þessir aðilar hafa gert sín á milli.
Undirritunina ber upp á afmælisdag Sparisjóðsins sem var stofnaður 3. desember 1942 og er því 65 ára í dag.
Myndir frá undirritun samnings má sjá hér