Kann að grínast og að taka gríni

 

„Það er bara allt slétt og leikandi þó nóg sé að gera,“ segir Árni Johnsen þingmaður. „Ég er með svona um tuttugu mál sem ég er tilbúinn til að leggja fyrir þingið enda af nógu að taka, mörg aðkallandi mál. Til dæmis er ég að berjast í því að Suðurlandsbraut verði tvöfölduð. Svo þarf að aðhafast í málinu um skipalyftuna í Eyjum en hún féll með skipi í fyrir tveimur árum. Menn telja að þetta eigi tildrög sín í skemmd sem kom í skjálftanum mikla árið 2000 en eyjan hristist rétt eins og meginlandið.“

Árni var fórnarlamb Audda í þætti hans Tekinn2 fyrir skemmstu. Þá varð hann fyrir afgreiðslustúlku á veitingastað sem kom heldur óblíðlega fram við hann efir að sessunautur Árna missti disk í gólfið. Hún sakaði hann meðal annars um kynferðislega áreitni. „Ég hafði bara gaman af þessu enda hrekkjalómur sjálfur. Í því felst að kunna að gera grín en jafnframt og ekki síður mikilvægt er að kunna að taka gríni. Enda lét ég engan bilbug á mér finna, sumir vina og vandamanna hafa meira að segja sagt mér að þeir sjálfir hefðu orðið brjálaðir í sömu aðstöðu og ég var settur í.”
Þá er hann spurður að því hvort annríkið á Alþingi leysi hann ekki undan öllum jólaönnum. „Nei, það er ekki svo. Maður er alltaf settur í eitthvað síðustu dagana fyrir jól, setja upp seríur og svona. Enda bara gaman að því.”

Nýjustu fréttir

Öflug barátta og samstaða skipar öndvegi í framtíð Eyjanna
Engin börn í vistun utan Vestmannaeyja
Grípa þarf til aukasundkennslu eftir langvarandi lokun
Suðurlandsslagur í Eyjum
Herjólfur til Landeyjahafnar seinni partinn
Sigurjón og Auðunn jafnir efstir á Skákþingi Vestmannaeyja 2026
Emil Gautason í lokahóp u-16
900 krónur urðu að 45 milljónum!
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.