Margrét Lára og Hermann Hreiðarsson leikmenn ársins í knattspyrnu
Created by PhotoWatermark Professional
Created by PhotoWatermark Professional

Fyrir stundu var tilkynnt um val á leikmönnum ársins 2007 í knattspyrnu. Í ár voru það eyjafólkið Hermann Hreiðarsson og Margrét Lára sem voru útnefnd sem knattspyrnumenn ársins. Báðir þessir leikmenn eiga frábært ár að baki og hafa staðið sig vel í þeim verkefnum sem að þau hafa tekið sér fyrir hendur.

Árið hjá þessu frábæra knattspyrnufólki var eftirfarandi:

Margrét Lára Viðarsdóttir knattspyrnukona úr Val var í dag útnefnd knattspyrnukona ársins 2007 á hófi sem haldið var í höfuðsstöðvum KSÍ í Laugardalnum. Þetta er annað árið í röð sem Margrét Lára hlýtur þessa nafnbót.

Hólmfríður Magnúsdóttir var í öðru sæti og Ásthildur Helgadóttir í þriðja sæti.

Margrét Lára átti frábært ár bæði með Val og íslenska landsliðinu á árinu og sló markamet með báðum liðum.

Hún sneri til Íslands snemma árs eftir að hafa hætt hjá þýska félaginu Duisburg. Hún ákvað í febrúar að ganga til liðs við Val að nýju og lék með þeim allt tímabilið.

Hún lék í heildina alla 16 leiki Vals í Landsbankadeild kvenna í sumar og skoraði í þeim 38 mörk og bætti þar með met frá árinu 2006 sem hún hafði sjálf sett er hún skoraði 34 mörk í 13 leikjum. Hún skoraði einnig eitt mark í eina bikarleik Vals á tímabilinu auk þess sem hún skoraði átta mörk í sex leikjum Vals í Evrópukeppni kvennaliða.

Hún lék alla 9 landsleiki Íslands á árinu og skoraði í þeim átta mörk. Í þriðja leiknum á árinu gegn Portúgal á æfingamóti á Algarve setti hún markamet með íslenska landsliðinu aðeins 20 ára gömul. Hún hefur nú skorað 29 mörk í 35 landsleikjum fyrir Íslands hönd. -tekið af fotbolti.net 

Eyjapeyinn, Hermann Hreiðarsson leikmaður Portsmouth og íslenska landsliðsins var í dag valin knattspyrnumaður ársins 2007 en valið var kunngjört í höfuðstöðvum KSÍ nú rétt í þessu.

Eiður Smári Guðjohnsen varð í öðru sæti og Grétar Rafn Steinsson í því þriðja.

Hermann hóf árið í röðum Charlton en þetta var hans fjórða tímabil hjá félaginu.

Charlton hóf tímabilið afar illa og var í ströggli allt tímabilið og féll að lokum. West Ham reyndi að fá Hermann í janúar en Charlton vildi ekki selja hann.

Hermann lék sinn 400 leik í ensku úrvaldsdeildinni í apríl en hann spilaði 31 af 38 leikjum Portsmouth í deildinni og alla nema einn var hann í byrjunarliði.

Þegar Charlton féll var Hermann samningslaus hjá Charlton og samdi svo við Portsmouth í lok maí til tveggja ára.

Hermann hefur nú leikið 13 af 18 leikjum Portsmouth á þessari leiktíð og hefur skorað tvö mörk en hann hefur setið á bekknum í undanförnum leikjum.

Hermann missti af fyrstu þremur landsleikjum ársins vegna meiðsla en spilaði svo síðustu fimm leikina og var fyrirliði í fjórum.

Hermann er nú þriðji leikjahæsti leikmaður Íslands frá upphafi með 75 landsleiki.

-tekið af www.fotbolti.net

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.