Stór hluti af erlendu bergi brotinn

Alls voru 149 ökumenn stöðvaðir vegna hraðaksturs í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli í síðustu viku. Þykir það ansi mikill fjöldi en sem fyrr er stór hluti þeirra sem stöðvaður er af erlendu bergi brotinn. Þó virðist sem svo að íslendingar eigi líka erfitt með að virða hraðatakmörk hérlendis. (meira…)

Töðugjöld fóru vel fram

Töðugjöld, sem haldin voru í Rangárþingi ytra, bæði í Þykkvabæ og á Hellu um síðustu helgi fóru þau vel fram að mati lögreglunnar á Hvolsvelli. Nokkuð var af fólki á báðum stöðum og var lögreglan með nokkurn viðbúnað vegna þessa, en um 200 ökumenn voru stöðvaðir af lögreglunni og kannað með ástand þeirra, bæði á […]

Guðbjörg með 6 mörk fyrir Fox í Frederikshavn

Danska handknattleiksliðið Frederikshavn Fox, sem Guðbjörg Guðmannsdóttir leikur með, vann norska liðið Nordstrand 31-21 í vináttuleik í Frederikshavn í gær.Guðbjörg skoraði 6 mörk í leiknum .Fox mætir FCK í dönsku bikarkeppninni um næstu helgi (meira…)

Baugur styrkir markaðsetningu á Vestmannaeyjum.

Á mánudaginn úthlutaði Baugur Group 38.4 milljónur úr Styrktarsjóði Baugs Group. Styrktarsjóður Baugs Groups HF er ætlað það hlutverk að styðja margvísleg líknar- og velferðarmál auk menningar- og listalíf. Í þetta sinn voru það 45 aðilar sem fengu úthlutað úr sjóðnum.  24seven ehf fékk úthlutað 250.000 kr til uppbyggingar á menningar- og ferðamálavef um Vestmannaeyjar […]

Lundaorðan

Það var gaman að fá viðbrögð við Bakkafjörupistlinum og kom mikið gott úr þessari umræðu. Einhverjir snéru við blaðinu og eru nú fylgjandi Bakkafjöru og hef ég sjálfur séð smá ljósatýru með Bakkafjöru eftir þessa umræðu. Þetta var akkúrat það sem ég vildi að það skapaðist umræða um málið og að litið sé á allar […]

Lífið er yndislegt á þjóðhátíð

Um þessa verslunarmannahelgi vorum við hjónaleysin á Þjóhátíð í Eyjum. Það er óhætt að segja að sú mynd og sú upplifun sem við höfðum af Þjóðhátíðinni er gjörólík þeirri mynd sem oft hefur verið dregin upp í fjölmiðlum. (meira…)

Blómstrandi dagar hefjast í kvöld

Blómstrandi dagar, bæjarhátíð Hveragerðis hefst í dag og verður opnunarhátíðin í Listasafni Árnesinga og hefst hún kl. 20.00. Þar koma fram Magnús Þór Sigmundsson og Jasshljómsveit Suðurlands og forseti bæjarstjórnar, Guðmundur Þór Guðjónsson, mun setja hátíðina. Frítt er inn.Er hún upphafið að fjölbreyttri dagskrá sem stendur fram á sunnudag. Dagskrá Blómstrandi daga: (meira…)

Samgönguráðherra – Suðurlandsvegur verður tvöfaldaður

Frá því er greint í Blaðinu í dag að Kristján L. Möller, samgönguráðherra, hafi upplýst að ákveðið sé að ráðast í tvöföldun Suðurlandsvegar. Ráðherrann lét þessi orð falla á fundi sem hann hélt með fulltrúum frá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) síðdegis í gær. (meira…)

Fáir samþykktu tilboð Eyjamanna

Eigendur einungis 0,01 prósents hlutafjár samþykktu yfirtökutilboð Eyjamanna ehf. í Vinnslustöðina. Tilboðið, sem hljóðaði upp á 4,6 krónur á hlut, rann út á mánudaginn og hafði þá verið í gildi frá 13. maí. Tilkynning er væntanleg í dag um niðurstöðu tilboðs Stillu ehf. í Vinnslustöðina. Stillumenn buðu á 8,3 krónur á hlut sem var 85 […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.