Sveitarfélagið styrkir Sesseljuhús um hálfa milljón
Fjórtán nemendur hafa nú hafið háskólanám á Sólheimum í Grímsnesi undir yfirskriftinni „Sjálfbær þróun í sjálfbæru samfélagi”. Námsbrautin er unnin í samstarfi Sesseljuhúss, umhverfisseturs á Sólheimum og bandarísku menntasamtakanna CELL. Fyrsta skólasetningin fór fram sl. föstudag og ávarpaði Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, samkomuna. (meira…)
Ákærður fyrir ólöglegar kvikmyndasýningar
Eigandi veitingastaðarins Kaffi Kró í Vestmannaeyjum hefur verið lögsóttur fyrir að sýna gestum veitingastaðarins í nokkur skipti mynd Heiðars Marteinssonar „Uppbyggingin – Eldgosið í Heimaey” sumarið 2004.Þá er hann einnig ákærður fyrir að hafa sýnt myndina „The Heimaey eruption, Iceland 1973″ eftir Alan V. Morgan á Krónni í nokkur skipti á árinu 2005. Maðurinn er […]
Myndaleg fyrstu skref mótvægisaðgerða

Fyrstu skrefin í mótvægisaðgerðum ríkisstjórnar eru tekin af myndug skap. Ég tel að ríkisstjórn hafi með þeim markað ákveðna stefnu og á von á því að innan skamms verði næstu skref stigin. Hvað varðar sértækar aðgerðir til styrktar Vestmannaeyjum þá bera þar hæst 20 milljóna styrkur til rannsókna- og fræðasetursins, framlag til eflingar framhaldsskólans og […]
Byggja á nýtt útivistarsvæði við Íþróttamiðstöðina

Á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja á morgun verður lögð fram tillaga um að fela umhverfis og framkvæmdasviði að leita hagkvæmustu leiða til að byggja nýtt útivistarsvæði við íþróttamiðstöð með það fyrir augum að hægt verði að taka slíka aðstöðu í gagnið 1. júní árið vorið 2008. (meira…)
3 stór mál tekinn fyrir á morgun

Á bæjarstjórnarfundi á morgun verða tekinn fyrir 3 mjög stór mál fyrir Vestmannaeyjar og þau innihalda meðal annars; nýtt útivistarsvæði, knattspyrnuhús og lækkun á leiksskólargjöldum. Hægt er að lesa tillögurnar í heild sinni hér að neðan.1. Mál Bæjarstjórn samþykkir að fela umhverfis og framkvæmdasviði að leita hagkvæmustu leiða til að byggja nýtt útivistarsvæði við íþróttamiðstöð […]
Reisa á knattspyrnuhús sem verður tilbúið á næsta ári

„Bæjarstjórn samþykkir að fela umhverfis og framkvæmdasviði að leita hagkvæmustu leiða til að byggja knattspyrnuhús í Vestmannaeyjum með það fyrir augum að það verði tekið í gagnið árið 2008,“ segir í tillögu sem lögð verður fyrir fund bæjarstjórnar Vestmannaeyja á morgun. Er það bæjarstjórn í heild sem stendur að tillögunni. (meira…)
Ekki líklegt að komi til fjöldaatvinnuleysis á næstu mánuðum

Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, segir, að samtals verði varið 10,5 milljörðum króna til mótvægisaðgerða á næstu tveimur fiskveiðiárum vegna niðurskurðar þorskkvóta. Ekki eru í þessari tölu framlög til vísindaverkefna. 6,5 milljarðar eru nýtt fjármagn en rúmir 4 miljarðar eru flýting á framkvæmdum. Árni sagði að það væri mat ríkisstjórnarinnar, eftir að hafa ráðfært sig við […]
Hamarsvegur lokaður að hluta
Mikið vatnsveður gengur nú yfir eyjarnar en Veðurstofan varaði við mikilli úrkomu á sunnanverðu landinu í dag. Heiðar Hinriksson, lögreglumaður sagði að búið væri að loka hluta af Hamarsvegi á móts við Þórsvöllinn vegna vatnselgs þar sem niðurföll hafi ekki undan. (meira…)
FR�?TTIR á föstudögum til áskrifenda á fastalandinu

Áskrifendum Frétta á meginlandinu, hefur fram að þessu verið sent blaðið með flugi á fimmtudagsmorgnum. Það hefur þó verið undir því komið að hægt væri að fljúga til Eyja. Nú hefur orðið sú breyting, að framvegis verða Fréttir sendar með Herjólfi hvern fimmtudagsmorgun. Blaðið verður því komið í Póstmiðstöðina í Reykjavík uppúr hádeginu á fimmtudögum, […]
Mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar kynntar í dag

Fjármálaráðherra, iðnaðarráðherra, menntamálaráðherra og félagsmálaráðherra hafa boðað til blaðamannafundar í Þjóðmenningarhúsinu í dag kl. 16.00. Þar verða kynntar tillögur ríkisstjórnarinnar að mótvægisaðgerðum vegna niðurskurðar þorskkvóta. (meira…)