Andri stigameistari og efnilegasti kylfingur ársins

Nú er lokið Kaupþingsmótaröð unglinga í golfi og verðlaunaafhending fór fram í Laugardagshöllinni laugardaginn 22. september sl.Andri Már Óskarsson úr GHR varð stigameistari unglinga 16 til 18 ára. Þetta er frábær árangur hjá Andra Má þar sem hann er á fyrsta ári í þessum aldurshóp. (meira…)

Verkefninu lýkur um helgina

Nú er hver að verða síðastur til að taka þátt í verkefninu fjölskylan á fjallið í ár. Þau fjöll sem HSK tilnefndi í ár eru Þórólfsfell í Fljótshlíð og Langholtsfjall í Hrunamannahreppi. Á fjöllunum eru gestabækur sem fólk er beðið um að skrifa sig í ásamt heimilisfangi og/eða símanúmeri. (meira…)

Friðrik fyrirliði Njarðvíkinga í hjartaaðgerð

Friðrik Stefánsson fyrirliði úrvalsdeildarliðs Njarðvíkur og miðherji íslenska landsliðsins er á leið í hjartaaðgerð á næstu dögum. Frá þessu er greint á vef Víkurfrétta. Hann mun því ekki leika með Njarðvíkingum í undanúrslitum Powerade-bikarkeppninnar í kvöld gegn Snæfell.„Ég fer í aðgerð um miðja næstu viku en ég veit svo sem ekki nákvæmlega hvað er að […]

Verslunarballið 2007 í Höllinni 13.október næstkomandi

Það styttist í hið sí vinsæla verslunarball 2007 en það verður haldið í Höllinni þann 13.október næstkomandi. Ekki er langt síðan að verslunarballið var endurvakið og er það orðið fastur liður í skemmtanadagskrá eyjamanna. Í ár eru það Vinir Vors og Blóma sem leika fyrir dansi og veislustjórn verður í höndum Atla úr Strákunum og […]

Frítt á leikinn á morgun

Glitnir og Eignarhaldsfélagið Fasteign bjóða Eyjamönnum og gestum frítt á leik ÍBV og Fjölnis á morgun kl. 17.15. Kl.16.30 mun Þorkell Sigutjónssson taka fyrstu skóflustunguna að nýju knattspyrnuhúsi við Týsheimilið, ásamt nokkrum iðkendum af yngstu kynslóðinni hjá ÍBV. Þar á undan eða klukkan 15.00 fer fram í sal 2 í Íþróttamiðstöðinni lokahóf yngri flokkanna fyri […]

Vålerenga vill kaupa Gunnar Heiðar

Eyjamaðurinn Gunnar Heiðar sem nýverið var lánaður frá þýskaliðinu Hannover hefur byrjað vel fyrir norskaliðið Våleranga. Gunnar Heiðar hefur strax náð að opna sinn markareikning og eru norðmennirnir ánægðir með spilamennsku Gunnars Heiðars. Vålerenga hefur áhuga að ganga frá kaupum strax á Gunnar í staðinn fyrir að leigja hann en Vålerenga á forkaupsréttinn á Gunnari. […]

Frítt á völlinn á morgun föstudag

Á morgun föstudag er síðasti heimaleikur sumarsins hjá meistaraflokki ÍBV en það eru Fjölnismenn sem koma í heimsókna til eyja og leika liðin á Hásteinsvelli klukkan 17:15. Fyrr um daginn eða klukkan 15:00 er lokahóf yngri flokka ÍBV í knattspyrnu í Íþróttamiðstöðinni. Eftir lokahófið mun svo Þorkell Sigurjónsson taka fyrstu skóflustunguna að nýju knattspyrnuhúsi. ÍBV á […]

Aðalfundur Eyverja var haldinn í Ásgarði í gærkvöldi.

Á fundinum var auk þess kosið í trúnaðarstöður flokksins fyrir hönd Eyverja, lög Eyverja samþykkt og fleira. Nýkjörin stjórn Eyverja vill koma því á framfæri að ekkert verður slakað á í starfinu og Eyverjar koma til með að sanna það enn og aftur hversu öflug ungliðahreyfing félagið er. Ný stjórn Everjar er þannig skipuð: Margrét […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.