Ánauðugir sjómenn á íslenskum skipum

Björn Valur Gíslason, varþingmaður VG, segir að brögð séu að því að sjómenn af erlendum uppruna njóti ekki sömu kjara og réttinda og aðrir sjómenn. Hann tók málið upp utan dagskrár á Alþingi í gær og kallaði umboðsmenn erlendra verkamanna þrælahaldara samtímans. Björn Valur segir í samtali við dv.is að hann hafi fengið ábendingar um […]
Einn léttur fyrir helgina
Nú styttist í helgina og þá leitar hugurinn oft til einhverra skemmtana og upplyftingar eftir eril vinnuvikunnar. Stundum getur farið öðruvisi en hugurinn stendur til. Gangið hægt um gleðinnar dyr. (meira…)
Fjögur hundruð handboltastrákar á leiðinni til Eyja

Það er skammt stórra högga á milli í Vestmannaeyjum því um síðustu helgi fór fram Landsmót Samfés þar sem um 400 unglingar skemmtu sér vel. Um þessa helgi eru það hins vegar um fjögur hundruð handboltadrengir sem ætla að heimsækja Eyjarnar en hópurinn kemur með fyrri ferð Herjólfs í dag. Fyrstu leikirnir fara svo fram […]
Fyrirhugað að auka stofnfé hjá Sparisjóði Vestmannaeyja

Síðastliðin þriðjudag var haldinn fundi hjá stofnfjárhöfum í Sparisjóði Vestmannaeyja. Á þessum fundi m.a. samþykktar tillögur stjórnar um aukningu á stofnfé Sparisjóðsins og breytingu á eignar prósentu hvers stofnfjárhafa. Eftir þessa breytingu er úr sögunni jöfn eignarprósenta stofnfjárhafa í sparisjóðnum en áður áttu allir 70 stofnfjárhafarnir 1.4% stofnfjár. www.eyjar.net sendi spurningar á Þór Vilhjálmsson formann […]
Stofnbréf orðin söluvara
Á fundi stofnfjáreigenda í Sparisjóði Vestmannaeyja á þriðjudagskvöldið var samþykkt tillaga stjórnar um að auka stofnfé sjóðsins. Einnig var lögð fram tillaga um breytingar á samþykktum Sparisjóðsins um skipan aðal- og varamanna í stjórn. Á fundinum var líka kynnt árshlutauppgjör Sparisjóðs ins fyrir mánuðina janúar til júní en stóra málið var tillagan um aukningu stofnfjár […]
Ég hefði helst viljað sjá nýjan Herjólf sem fyrst.

Alþingi hefur tekið til starfa að nýju eftir stutt sumarþing og nú fá nýkjörnir þingmenn að láta ljós sitt skína. Staða suðurkjördæmis er sterkari nú en hún var fyrir síðustu kosningar þegar kjördæmis hafði einungis einn ráðherra í ríkisstjórn. Nú eru tveir ráðherrar úr kjördæminu og sex þingmenn kjördæmisins teljast stjórnarþingmenn. www.eyjar.net sendu nokkrar spurningar á þingmenn […]
Mikill áhugi á verslunarplássi í Baldurshaga

Á svokallaðri Baldurshagalóð í miðbæ Vestmannaeyja rís nú glæsileg bygging sem mun innihalda fyrsta vísi að verslunarmiðstöð í Vestmannaeyjum. Einnig eru í húsinu 2ja, 3ja og 4ja herbergja íbúðir og hefur gengið vel að selja þær. www.eyjar.net hafði samband við Helga Bragason hjá Fasteignasölu Vestmannaeyja til að fræðast um málið. Samkvæmt upplýsingum frá Helga er […]