Annar skjálfti við Selfoss

Jarðskjálfti, um 2,6 á richter, varð um klukkan hálfsex í dag. Upptök skjálftans voru 2,9 km norðaustur af Selfossi og fannst hann því greinilega á Selfossi. Annar skjálfti, um 3,2 á richter, varð á svipuðum slóðum um hádegisbil í gær. (meira…)

Kröfu lögreglu um gæsluvarðhald hafnað

Héraðsdómur Suðurlands hafnaði í dag kröfu lögreglunnar á Selfossi um að kona á fertugsaldri, sem grunuð er um að hafa kveikt í húsi í Vestmannaeyjum í vikunni, yrði úrskurðuð í gæsluvarðhald. Konan er því laus úr haldi lögreglu. Lögreglan óskaði í gær eftir því að konan yrði úrskurðuð í viku gæsluvarðhald. Dómari tók sér frest […]

Konan látin laus

Gæsluvarðhaldskröfu var í dag hafnað yfir konu sem handtekin var í Vestmannaeyjum í fyrradag vegna gruns um að hún hefði kveikt í íbúð sinni. Dómari tók sér í gær tæplega sólarhrings frest til að taka ákvörðun, kröfu um gæsluvarðhald vegna rannsóknarhagsmuna var hafnað og var konan látin laus nú síðdegis. (meira…)

Verður ferjuhöfn í Bakkafjöru næsta Grímseyjarferjuklúður”?

Nú ætla ég að fara yfir nokkur atriði í þessari skýrslu, sem stýrihópur um höfn í Bakkafjöru, sendi frá sér og er byggð á “fjölmörgum” rannsóknum margra virtra fyrirtækja og stofnana.  En ég fæ nú ekki betur séð en að niðurstöðum sé “hagrætt” þannig að útkoman verði verkefninu “hagstæð”.    –  Á blaðsíðu 5 í umræddri skýrslu, […]

Hin ýmsu störf mannfólksins

Það er misjafnt hvað fólki finnst gaman í vinnunni. Það sem sumum finnst skemmtilegt, finnst öðrum leiðinlegt. Og oft heldur fólk að grasið sér grænna hinumegin girðingar, – aðrir hafi það betra en maður sjálfur. (meira…)

Vestmannaeyjar í spurningarþættinum Útsvar á RÚV í kvöld.

Í kvöld klukkan 20:10 munu fulltrúar Vestmannaeyja etja kappi við lið Mosfellsbæjar í spurningar þættinum Útsvar. Þættirnir eru í beinni útsendingu hverju föstudagskvöldi. Umsjónarmenn eru Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir. Dómari og spurningahöfundur er Ólafur B. Guðnason og útsendingu stjórnar Helgi Jóhannesson. Fulltrúar Vestmannaeyja í kvöld eru: Helgi ÓlafssonBjörn Ívar KarlssonSteinunn Einarsdóttir Lið Mosfellsbæjar skipa.Sigrún […]

Því miður verð ég að játa það að ég tel afar ólíklegt að siglt verði milli Vestmannaeyja og Bakkafjöru árið 2010.

Á miðvikudaginn var haldinn aukafundur í bæjarráði Vestmannaeyjar til að setja fram og samþykkja minnisblað um kröfur Vestmannaeyjarbæjar vegna Bakkafjöru og Bakkaferju. Tillögur bæjarráðs eru metnaðarfullar og slær bæjarráð hvergi af í kröfunum og voru tillögur bæjarráðs samþykktar samhljóða. www.eyjar.net sendu nokkrar spurningar um málið á Pál Scheving oddvita V-lista í bæjarstjórn Vestmannaeyja. Í auglýsingu […]

Skjót viðbrögð þegar einn björgunarmanna hneig niður vegna hjartaáfalls

SKIPVERJAR skipa í Reyðarfjarðarhöfn brugðust skjótt við í fyrrinótt þegar einn þeirra féll niður á milli skips og bryggju. Ekki var hann fyrr kominn upp á bryggjuna en sá þeirra sem lengst hafði reynt að ná honum upp hneig niður vegna hjartaáfalls. “Það kemur bara peyi til okkar seint um nóttina og kallar að það […]

Mikil umræða hjá bloggurum um minnisblað bæjarráðs

Vefurinn www.mbl.is birtir í gær frétt um aukafund bæjarráðs Vestmannaeyja um málefni Bakkafjöru og Bakkaferju. Á mbl.is geta bloggarar skrifar sínar skoðanir á fréttum og létu viðbrögð bloggara mbl.is ekki á sér standa í gær og sitt sýndist hverjum um málefnið. Sigursveinn Þórðarson http://www.svenko.blog.is Ánægður að sjá þessa frétt. Aukafundur í bæjarráði og lagt fram minnisblað […]

Frönsk lauksúpa

Þessi franska lauksúpa er mjög auðveld í eldun og smakkast frábærlega. Elda þessa súpu oft þegar lítið er til í ískápnum og ég nenni hreinlega ekki út í búð.  Maður talar ekki endilega frönsku eftir að hafa borðar hana en iljar vel á köldum vetrar degi.  800 gr laukur2 msk laukur1 msk olía2 tsk ferskt […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.