Margt um manninn við opnun frímerkjasýningar
8. febrúar, 2019

„Mæting fór langt fram úr öllum vonum.” segir Kári Bjarnason, forstöðumaður Safnahúss aðspurður um aðsóknina á opnun sýningar undir yfirskriftinni „Frímerkja- og póstsaga Vestmannaeyja í 100 ár” sem opnaði í gær. Hægt verður að skoða sýninguna fram á sunnudag.

Kári sagði við opnun sýningarinnar að eitt af því sem sé hvað ánæjulegast við að starfa í þessu húsi er að fá tækifæri til að uppgötva ný verðmæti í þeim fjölbreytta safnkosti sem hér er varðveittur.

„Við þekkjum öll hluti eins og ljósmyndasafn Sigurgeirs sem þenur sig með allt að því ógnvænlegri nákvæmni yfir 70 ár af 100 ára sögu Vestmannaeyjabæjar eða hinar heimsfrægu Kötlumyndir Kjartans Guðmundssonar eða fágætisbókasafnið sem Ágúst Einarsson gaf Vestmannaeyjabæ fyrir tveimur árum raunar nákvæmlega uppá dag og starfmenn Árnastofnunar sem heimsóttu safnið í fyrra sögðu mér að væri merkasta fágætisbókasafn landsins utan Reykjavíkur svo maður nefni aðeins fáein dæmi. Svo eru önnur verðmæti sem maður hefur enga þekkingu á og eru því luktur heimur innan safnsins þar til við eignumst hollvin sem hefur jafn viðamikla þekkingu og Guðni Friðrik Gunnarsson og þegar við bættist að hann heimtar að koma og vinna í sjálboðavinnu frá klukkan 6 morgunn eftir morgunn til að klára verkið áður en hann mætir í vinnuna þá verður það einfaldlega ekki boxað út.” sagði Kári Bjarnason.

Vonandi getum við leyft afkomendum okkar að skoða þessa forngripi í framtíðinni

Guðni Friðrik segir uppistöðuna í sýningunni vera “Átthagasafn “ Guðmundar Ingimundarsonar, sem hann og kona hans Jóhanna M. Guðjónsdóttir frá Hlíðardal færðu bænum að gjöf sumarið 1991 að lokinni Norrænni frímerkjasýningu í Reykjavík. „Í nokkur ár var hægt að skoða safnið í flettirömmum í Safnahúsinu. Vonandi getum við leyft afkomendum okkar að skoða þessa forngripi í framtíðinni. Næsta stig verður kanski að safna snappchöppum, hver veit.” sagði Guðni Friðrik og bætti við að hann með dyggri hjálp Hlyns hafi bætt í safnið, ýmsu sem tengist Goslokahátíðum.

Hann segir að einnig sé að finna merki sem bera myndir frá Eyjum.s.s Þjóðhátíð o.fl.  „Ljóstrit  úr safni Indriða Pálssonar,sem selt var fyrir nokkru í Svíþjóð, En safn hans var besta safn íslenskra merkja og sárgrætilegt að það skuli hafa verið selt úr landi. Hönnuðum úr Eyjum, Jóa Listó, Ástþórs Jóhannssonar og auðvitað Hlyns eru gerð skil.” segir Guðni Friðrik Gunnarsson.

Sýni bæinn á hógværan en samt fallegan hátt þar sem bærinn kúrir í sínu stæði

Hlynur Ólafsson, hönnuður frímerkisins sagði það mikinn heiður að fá að koma og fagna með bæjarbúum á þessum tímamótum. „Í dag fögnum við útgáfu míns nýjast frímerkis sem fjallar um eitt hundrað ára afmæli bæjarins. Við þetta tækifæri var ég beðinn um að kynna það sem ég hef verið að gera í frímekjahönnun á síðustu 25 árum.

Þegar ég flutti frá Eyjum til þess að hefja nám í grafískri hönnun við Myndlista- og handíðaskóla Íslands þá hvarlaði ekki að mér að það ætti eftir að verða mitt verk næstu 25 árin ásamt öðru að fá að vinna við hönnun frímerkja með öllum þeim ólíku þemum og myndefnum sem þar eru. Þetta starf hefur í gegnum árin orðið til þess að ég hef náð að kynnast alls konar áhugaverðu fólki sem hefur lagt mikið til af þekkingu og upplýsingu, til að gera öll þessi fjölbreyttu frímerki að möguleika því í frímerkjahönnun þarf allt að ver rétt og satt til að standast tímans tönn.”

Hlynur segir Guðna Friðrik Gunnarsson frá Gilsbakka hafa fengið sig til að hanna fyrsta frímerkið þegar hann vann sem starfsmaður markaðsdeildar frímerkjaútgáfu póstsins. „Síðan hef ég hannað yfir 190 frímerki fyrir Póstinn sem sýnd eru á dökku flekunum hér til vinstri. Allt þetta verk er aðeins mögulegt með góðri hjálp vísindamanna, sagnfræðinga og ýmissra listamanna sem stundum hafa lagt til myndefni og annað en þá er helst að nefna Jón Baldur Hlíðberg, Ólaf Pétursson og Jóa okkar Listó.”

Hlynur tilkynnti viðstöddum þessu næst að hann hafi ákveðið að gefa safninu þessa fleka til minningar um þetta tilefni og kom hann á framfæri þökkum til Kára Bjarnasonar fyrir jákvæðni og hjálp við að gera þetta mögulegt.

„Þegar ákveðið var að ég fengi að hanna frímerki fyrir 100 ára afmæli bæjarins þá fór í gang vinna sem kostaði margar prufur og meðal annars þrjár ferðir hingað til að ljósmynda til að ná réttu myndinni sem mér finnst að sýni bæinn á hógværan en samt fallegan hátt þar sem bærinn kúrir í sínu stæði.” sagði Hlynur Ólafsson. 

Fleiri myndir frá opnuninni má sjá hér að neðan. Sýningin verður opin í dag, föstudag frá kl. 10-18. Þá er hún opin laugardag og sunnudag kl. 13-16.

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.