Veituhúsið á Skansinum - Listasýning og gjörningur við opnun

„Ég er svo heppin að hafa „farið í sveit“ á sumrin til Þóru og Júlla frænda á Heiðaveginum og síðar Þóru systir og Óla til Vestmannaeyja sem krakki og unglingur,“ segir Ásta Vilhelmína Guðmundsdóttir.

Hún ásamt Sung Beag opnar listasýninguna Náttúru hamfarir /náttúrulegar hamfarir í Veituhúsinu á Skansinum kl. 17.15 í dag, föstudag. Um leið verður Sung Beag með gjörning.

Í Vestmannaeyjum eru náttúruöflin stöðugt að verki

„Ég á svo dýrmætar og yndislegar minningar frá þessum tíma sem ég er svo þakklát fyrir. Ég fékk tækifæri til að kynnast náttúrunni, rótunum mínum og fólkinu mínu sem ég dái og dýrka.

Í Vestmannaeyjum eru náttúruöflin stöðugt að verki. Eldfjöllin tvö sem vaka yfir og móta landið og fólkið. Krafturinn í hafinu sem heldur utan um okkur öll, vaggar okkur, hristir upp í okkur, sefar, fæðir og elur. Og svo vindurinn. Allt þetta hefur mótað mig og minn hluta þessarar sýningar,“ segir Ásta.

Hefur hlotið viðurkenningar fyrir listsköpun sína

Sung Beag er listamaður fæddur og uppalin í hafnarborginni Busan í Suður Kóreu 1975. Í listsköpun sinni vinnur hann í ýmsa miðla fer ótroðnar slóðir sem byggjast oft á innsetningum eða skúlptúr. Hann hefur ferðast víða og hlotið viðurkenningar fyrir listsköpun sína.

Hann hefur einning staðið fyrir og stýrt listahátíðum „Art in Nature“ í heimaborg sinni Busan. Þar hefur fjöldi listamanna jafnt frá Suður Kóreu og víðsvegar að úr heiminum dvalið, unnið og sýnt afrakstur verka sinna til fjölda ára.

„Ég hef í gegnum Sung Beag verið svo lánsöm að fá að kynnast Suður Kóreu, þessu framandi landi og þá sérstaklega Busan sem byggðist á nálæginni við hafið eins og Vestmannaeyjar. Það sem heillaði mig mest við Busan fyrir utan það að kynnast fólkinu og öðrum menningarheimi var fiskmarkaðurinn og lífið í kringum hann. Ég hlakka til samsýningar okkar og að kynna Sung Beag fyrir Vestmannaeyjum og Goslokahátíð,“ sagði Ásta að endingu.

Sýningin opnar kl. 17.15 í dag, föstudag í Veituhúsinu á Skansinum.

 

Dagskrá Goslokahátíðar

Nýjustu fréttir

Foreign Monkeys gefa út þriðju breiðskífu sína – „III“
Úttekt á fasteignagjöldum ársins
Mikil gróska í fimleikastarfi og mót framundan
Hlutafjáraukning Eyjaganga langt komin
Áframhaldandi hvassviðri út vikuna  
Áætlun um rýmingu Heimaeyjar eftir að Surtsey fór að gjósa
Loðnu að finna á stóru svæði
Íbúakosning samhliða næstu sveitarstjórnarkosningum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.