Íris ætlar að ganga í Sjálfstæðisflokkinn

„Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja og oddviti H-listans, Fyrir Heimaey, ætlar að ganga í Sjálfstæðisflokkinn. Þetta staðfestir Íris í samtali við fréttastofu RÚV. Íris segist þó ekki ætla í prófkjör fyrir flokkinn í vor, en framboðsfrestur rann út klukkan sex í kvöld. Þetta verða að teljast mikil tíðindi en fyrr í dag var á félagsfundi Fyrir […]

Arnór með fimm mörk í jafntefli Karlskrona

Arnor_ibv_DSC_6463 (1)_op

Eyjamaðurinn Arnór Viðarsson átti góðan leik þegar Karlskrona gerði jafntefli gegn Alingsås í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Arnór skoraði fimm mörk úr sjö skotum og gaf að auki tvær stoðsendingar. Lokatölur leiksins 33-33. Karlskrona er í baráttu um að komast í úrslitakeppnina en liðið situr í níunda sæti deildarinnar með 22 stig. Liðin […]

Rannveig Ís­fjörð sækist eftir 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins

Rannveig Ísfjörð Cr

Rannveig Ís­fjörð hefur tilkynnt að hún gefi kost á sér í 4. sæti í komandi prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Eyjum. Í tilkynningu sinni rifjar hún upp að dvöl hennar í Eyjum hafi upphaflega átt að vara í þrjá mánuði, en sé nú orðin 173 mánuðir – og ekki sér fyrir endann á henni. Hún segist frá […]

Systurskipin landa fullfermi

Landad Ur Vestmannaey Ve 22 Jul

Systurskipin úr Eyjum, Vestmannaey VE og Bergey VE, lönduðu bæði fullfermi í heimahöfn í gærmorgun. Rætt er við skipstjóranna og þeir beðnir um fréttir af veiðunum á vef Síldarvinnslunnar. Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey lét nokkuð vel af sér. „Við héldum til veiða í brælu en síðan var hið þokkalegasta veður í túrnum. Við […]

Golfvöllurinn í Eyjum tilnefndur til alþjóðlegra verðlauna

Golfvöllurinn í Eyjum hefur verið tilnefndur til verðlauna á World Golf Awards 2026, sem teljast meðal virtustu alþjóðlegu viðurkenninga í heimi golfíþróttarinnar. Kom þetta fram á heimsíðu Golfklúbbs Vestmannaeyja. Völlurinn fær tilnefningu í tveimur flokkum, annars vegar sem besti golfvöllur Evrópu og hins vegar sem besti golfvöllur Íslands 2026. Tilnefningar eru byggðar á mati fagfólks […]

Aníta sækist eftir 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins

Aníta Jóhannsdóttir hefur tilkynnt á samfélagsmiðlum að hún hyggist gefa kost á sér í 2. sæti í komandi prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum. Í tilkynningu sinni segist Aníta, sem er fædd og uppalin í Eyjum, vilja leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar samfélagsins. „Sem fædd og uppalin Eyjakona vil ég leggja mitt af mörkum til […]

Enginn úr núverandi meirihluta gefur kost á sér áfram

meirihlutinn_2022

Bæjarmálafélagið Fyrir Heimaey mun ekki bjóða fram lista í bæjarstjórnarkosningunum í Vestmannaeyjum í vor. Ákvörðunin var tekin á fundi félagsins í dag. Í tilkynningu segir að félagið sé ekki stjórnmálaflokkur og því sé þátttaka í kosningum ekki sjálfgefin. „Nú látum við gott heita,“ segir jafnframt í yfirlýsingunni. Fyrir Heimaey, H-listinn, hefur haft forystu í bæjarstjórn […]

Síðasti séns! Taktu þátt í að móta menningarstefnu Vestmannaeyja

default

Nú styttist í að frestur til að taka þátt í könnun um menningarstefnu Vestmannaeyja renni út. Á miðnætti annað kvöld lokar könnunin og því er síðasti séns fyrir íbúa að koma sínum sjónarmiðum á framfæri og hafa áhrif á stefnumótun í menningarmálum sveitarfélagsins. Hér að neðan má sjá nánar um könnunina og hvernig má bera […]

Jóna Sigríður gefur ekki kost á sér áfram

Jóna Sigríður Guðmundsdóttir hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér á lista bæjarmálafélagsins Fyrir Heimaey í komandi sveitarstjórnarkosningum í Vestmannaeyjum. Hún hefur setið í bæjarstjórn undanfarin átta ár og segist ganga sátt frá borði, þakklát fyrir traustið og reynsluna sem starfið hefur fært henni. Jóna Sigríður tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum í morgun: Kæru vinir, […]

Páll gefur ekki kost á sér

Páll Magnússon, bæjarfulltrúi H-listans og forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu í bæjarstjórn þegar kjörtímabilinu lýkur í vor. Hann segist stíga til hliðar sáttur og stoltur af þeim árangri sem náðst hafi í rekstri og stjórn bæjarins á undanförnum árum. Pistil Páls má lesa hér að neðan. Góðir […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.