Arnór með fimm mörk í jafntefli Karlskrona
Arnor_ibv_DSC_6463 (1)_op
Arnór Viðarsson í leik með ÍBV. Mynd/Óskar Pétur Friðriksson

Eyjamaðurinn Arnór Viðarsson átti góðan leik þegar Karlskrona gerði jafntefli gegn Alingsås í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Arnór skoraði fimm mörk úr sjö skotum og gaf að auki tvær stoðsendingar. Lokatölur leiksins 33-33.

Karlskrona er í baráttu um að komast í úrslitakeppnina en liðið situr í níunda sæti deildarinnar með 22 stig. Liðin í 7. og 8. sæti, Ystads IF og Onnereds eru líka með 22 stig. Fjórar umferðir eru eftir af tímabilinu og fara efstu átta liðin í útslitakeppnina. Alingsås situr í sjötta sæti.

Næsti leikur Karlskrona er gegn Hammarby, liðinu í þriðja sæti deildarinnar.

Nýjustu fréttir

Páll aftur á Sprengisandi – Beint í djúpu laugina
Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika
Fótboltamaðurinn Bjarki Björn Gunnarsson er íþróttamaður mánaðarins
Veðurblíðan í Eyjum í sumar á sér fáar hliðstæður
Fjölbreytt námskeið hjá Visku í haust
Myndlistargyðjan var alltaf í fyrsta sæti
Vestmannaeyjar Open 2026 í pílukasti fór fram um helgina
ÍBV tapaði á heimavelli gegn ÍA
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.