Tómas Bent lék allan leikinn í sigri Hearts

Eyjamaðurinn Tómas Bent Magnússon spilaði allan leikinn í 1-0 sigri Hearts á Aberdeen í Skosku úrvalsdeildinni í fótbolta fyrr í dag. Tómas lék á miðsvæðinu hjá Hearts þegar liðið fékk Aberdeen í heimsókn til Edinborgar. Heimamenn voru sterkari aðilinn í leiknum og komust í 1-0 eftir tæplega hálftíma leik. Claudio Braga skoraði mark Hearts. Ekki […]
Óskar stefnir á þriðja sætið hjá Sjálfstæðisflokki

„Vegna prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum. Stutta útgáfan: Ég hef ákveðið að bjóða mig fram í þriðja sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum fyrir komandi sveitastjórnarkosningar,“ segir Óskar Jósúason upplýsingafulltrúi Laxeyjar á Fésbókarsíðu sinni í dag. „Lengri útgáfan: Ég hef ávallt verið hrifinn af prófkjöri. Það gefur öllum jafnt tækifæri til að setja nafn sitt og […]
Bjargið fær rausnarlega gjöf

Bjargið fékk á dögunum veglega gjöf frá Kvenfélagi Landakirkju þegar félagið afhenti nýtt skynjunartæki sem ætlað er að efla hreyfingu og örva skynjun hjá eldra fólki. Kvenfélagið safnaði fyrir tækinu með það að markmiði að styðja við velferð og lífsgæði. Um er að ræða öflugt hjálpartæki sem mun nýtast vel í daglegu starfi og stuðla […]
Loðnufrysting í fullum gangi

„Loðnuvertíðin hefur gengið vel til þessa,“ segir Eyþór Harðarson útgerðarstjóri Ísfélagsins. „Veðrið hefur verið þannig að veiðar hafa verið stundaðar alla daga og vinnslurnar með stöðugt hráefni til frystingar. Ísfélagsskipin fjögur er búin að landa um 13.500 tonnum samtals þegar þessi frétt fór í loftið. Nú tekur við nokkurra daga pása þar til við hefjum […]
Emil skoraði í sigri Íslands á Eistum

Emil Gautason, leikmaður ÍBV í fótbolta, skoraði í 5-1 sigri u-16 ára landsliðs Íslands á Eistlandi í gærkvöld, er liðin mættust á Þróunarmóti UEFA í Færeyjum. Emil skoraði fimmta mark Íslands í leiknum þegar hann átti frábært hlaup í gegnum vörn Eista og skoraði með fyrstu snertingu í fjær hornið, óverjandi fyrir markvörðinn. Emil átti […]
Fjórtán gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins

Framboðsfrestur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum, til uppstillingar á lista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor, rann út kl. 18 í gær. 14 einstaklingar buðu sig fram og verða því í kjöri í prófkjörinu sem fram fer föstudaginn 13. mars nk. Eftirtaldir einstaklingar gáfu kost á sér: Aníta Jóhannsdóttir Ármann Halldór Jensson Eyþór Harðarson Guðbjörg Sól Sindradóttir […]
Líflegur laugardagsmorgunn – fullfermi og loðnuvinnsla í fullum gangi

Það var líflegt um að litast á athafnasvæði Vinnslustöðvarinnar í morgun. Drangavík VE kom til hafnar með fullfermi. Löndun hófst fljótlega eftir komu skipsins, að því er segir í færslu á facebook-síðu Vinnslustöðvarinnar. Jón Ólafsson var skipstjóri í veiðiferðinni sem gekk vel, þrátt fyrir að skipið hafi lent í brasi fyrr í vikunni. Á mánudag […]
Sækist eftir 3. sæti

Kæru vinir Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum þann 13. mars næstkomandi og sækist eftir 3. sæti á listanum. Ég hef verið virkur í starfi flokksins í rúm 20 ár, bæði í grasrótarstarfi og fagráðum bæjarins, og gegnt embætti formanns fulltrúaráðs síðustu átta ár. Ég hef einnig setið […]
Íris kveður H-listann með þakklæti

„Síðustu átta ár hafa þroskað mig mikið. Þau hafa reynt á en líka veitt mér styrk og mikla gleði. Ómetanleg reynsla situr eftir og nýir vinir og samstarfsfélagar bæst í hópinn,“ segir Íris Róbertsdóttir í færslu á Fésbókarsíðu sinni í gær. Um leið tilkynnir Íris að hún hafi ákveðið að gefa ekki kost á mér […]