Loðnufrysting í fullum gangi
Myndir: Óskar Pétur.

„Loðnuvertíðin hefur gengið vel til þessa,“ segir Eyþór Harðarson útgerðarstjóri Ísfélagsins.

„Veðrið hefur verið þannig að veiðar hafa verið stundaðar alla daga og vinnslurnar með stöðugt hráefni til frystingar. Ísfélagsskipin fjögur er búin að landa um 13.500 tonnum samtals þegar þessi frétt fór í loftið. Nú tekur við nokkurra daga pása þar til við hefjum hrognatöku, þ.e. þegar loðnan verður komin með þann hrognaþroska að japansmarkaður sé sáttur. Við eigum eftir um 17.000 tonn fyrir þá vinnslu og höfum við tíma fram í miðjan mars vonandi til að klára það verkefni,“ sagði Eyþór.

„Við erum á fullu í að frysta loðnu fyrir Japan,“ sagði Sindri Viðarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Vinnslustöðvarinnar í samtali við Eyjafréttir í byrjun vikunnar. Að hans sögn er Gullbergið á leið að vestan og hefst vinnsla úr afla þess í fyrramálið (á þriðjudaginn sl.). Huginn lauk löndun um hádegi og hélt í kjölfarið austur á bóginn, en í dag fannst loðna austan við Ingólfshöfða. Vonast er til að takast megi að nýta nokkra daga til viðbótar í frystingu áður en undirbúningur fyrir hrognavinnslu hefst.

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.